Handteknir við að ýta bifreið Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. apríl 2018 06:49 Lögreglan handtók mennina á Hverfisgötu í nótt. Vísir/KTD
Tveir menn voru handteknir eftir umferðaróhapp á Hverfisgötu í nótt. Þar hafði verið ekið á kyrrstæða bifreið sem er sögð mikið skemmd eftir áreksturinn. Þegar lögreglan blandaði sér í málið voru tveir menn á vettvangi óhappsins „að reyna að ýta bifreið sem þeir óku út af götunni,“ eins og það er orðað í skeyti lögreglunnar. Lögreglumenn voru engu nær um það hvor mannanna hafði í raun ekið bifreiðinni þegar hún hafnaði á þeirri kyrrstæðu og voru þeir því báðir handteknir. Þeir hafa fengið að gista í fangageymslu í nótt vegna rannsóknar málsins en ekki fylgir sögunni hvort þeir hafi verið í annarlegu ástandi. Annað var hins vegar upp á teningnum í Austurbænum skömmu eftir miðnætti þar sem „mjög ölvaður maður“ neitaði að yfirgefa húsnæði „þar sem hann átti ekkert erindi.“ Maðurinn er sagður hafa verið svo drukkinn að hann var ekki „fær til að vera á ferðinni“ og á hann jafnframt ekki að hafa fengið inn í Gistiskýlinu. Því var ákveðið að best væri að hann svæfi úr sér vímuna í fangaklefa í nótt.
Lögreglumál Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira