Skotafjöldinn hjá Harry Kane hefur hrunið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2018 17:45 Harry Kane. Vísir/Getty
Margir hafa áhyggjur af enska landsliðsframherjanum Harry Kane sem hefur gengið frekar illa að komast í færi eða skora mörk að undanförnu. Harry Kane hefur verið einn allra heitasti framherji ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin tímabil en á þessu tímabili er hann ekki að ná nærri því eins mörgum skotum að marki mótherjanna. Harry Kane hefur skorað 2 mörk í fyrstu 5 leikjum Tottenham á tímabilinu og þetta voru fyrstu mörkin hans í ágúst. Það er framför en nú er kappinn ískaldur í september. Kane hefur ekki skorað í þremur síðustu leikjum Tottenham, tveimur í deild og einum í Meistaradeild. Kane skoraði heldur ekki í tveimur leikjum sínum með enska landsliðinu fyrr í mánuðinum. Harry Kane hefur þar með spilað fimm leiki í röð án þess að skora og það þykir mjög mikið hjá þessum mikla markaskorara. Squawka Football vekur athygli á skotafjölda Harry Kane á þessu tímabili í ensku úrvalsdeildinni eins og sjá má hér fyrir neðan.Harry Kane's shots per 90 minutes in the Premier League: 2013/14: 5.0 2014/15: 3.9 2015/16: 4.2 2016/17: 3.9 2017/18: 5.4 2018/19: 2.4 Where did they all go!? pic.twitter.com/pUsJunOvI6 — Squawka Football (@Squawka) September 21, 2018Skotafjöldi Harry Kane hefur hrunið á þessu tímabili en hann er að ná þremur færri skotum að marki í leik. Margir velta því fyrir sér hvort að Harry Kane sé hreinlega þreyttur eftir mikið álag á árinu 2018, bæði með Tottenham og enska landsliðinu. Eitthvað er það sem stuðlar að því að Harry Kane er ekki að ná að skjóta á markið og þú skorar ekki nema að skjóta. Næsti leikur Harry Kane og Tottenham liðsins er á móti Brighton & Hove Albion á morgun en þetta er síðdegisleikurinn í enska boltanum.
Enski boltinn Mest lesið Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Fótbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Handbolti Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Handbolti Fleiri fréttir „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Ekki viss um framtíð sína hjá Liverpool Nýr stjóri Chelsea sagðist sjálfur bera ábyrgð á mistökum markvarðarins „Þetta get ég og þarf að gera oftar“ Skytturnar með forystuna en Garnacho stal þrumunni af Gyökeres Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Segir ósanngjarnt að kalla Arsenal „Set Piece FC“ Eitt félag hefur grætt mest á mistökum VAR Benoný kom inn á og breytti leiknum Sjá meira