Mikil uppbygging á KR-svæðinu í kortunum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. nóvember 2017 15:00 Svona lítur tillaga arkitekta út sem deiliskipulagsvinna á að miðast við. Mynd/ASK arkitektar/B.Snæ
Íþróttasvæði KR-inga í Frostaskjóli mun taka stakkaskiptum gangi áætlanir KR og Reykjavíkur eftir. Fyrir liggja tillögur sem miða að því að snúa knattspyrnuvellinum, byggja knatthús, íbúðir og húsnæði fyrir verslun og þjónustu á íþróttasvæði KR. Í síðustu viku samþykkti Borgarráð viljayfirlýsingu milli KR og borgarinnar um mögulega uppbyggingu á svæðinu. Vinna á nýtt deiliskipulag fyrir svæðið og samtals er gert ráð fyrir 32 þúsund fermetra aukningu á byggingamagni á svæðinu. Heildaraukning á aðstöðu KR nemur allt að 12.000 fermetrum. Tæpir 10.000 fermetrar verða til fyrir íbúðir og um 10.000 fermetrar undir verslun og þjónustu. Vinna við deiliskipulagið miðast við tillöguna sem sjá má hér að ofan en þær hafa verið kynntar í borgarkerfinu, sem og í Hverfisráði Vesturbæjar. Líkt og sjá má myndinni hér fyrir ofan er gert ráð fyrir að knattspyrnuvellinum verði snúið frá því sem nú er. Þá er gert ráð fyrir stúku við völlinn, 50x70 metra yfirbyggðu knatthúsi, auk margvíslegra bygginga sem bæði er hugsaðar sem íbúðir, félagsaðstaða fyrir KR sem og ýmiskonar þjónusta fyrir hverfið. „Aðalhvatinn er sá að bæta íþróttalega og félagslega aðstöðu. Til þess að gera það fórum við þessa leið að gera tillögu að því að snúa vellinum og nýta Kaplaskjól og Flyðrugranda undir þjónustulega starfsemi og eitthvert form að minni íbúðum til að laða að yngra fólk,“ segir Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri KR, í samtali við Vísi.Svona lítur svæðið út í dag.„Hugmyndafræðin gengur út á það að reyna að koma því þannig fyrir að þarna sé góð þjónusta fyrir hverfið og að við tengjum svolítið umhverfið sem við erum í, sundlaugina, Kaffi Vest, Melabúðina, Ísbúðin og allt þetta og svo eitthvað form af líkamsrækt, heilsu, læknisþjónustu og auðvitað hverfistengda þjónustu borgarinnar,“ segir Jónas.Gæti tekið breytingum Eftir að viljayfirlýsingin var samþykkt í Borgarráði skapaðist töluverð umræðu um uppbyggingu á svæðinu á samfélagsmiðlum. Flestir virtust sammála um að þörf væri á uppbyggingu á svæðinu en síðasta mannvirkið var reist árið 1999. Lýstu þó nokkrir yfir áhyggjum vegna þess byggingamagns sem fyrirhugað er og veltu fyrir sér hver væri þörfin á því að byggja íbúðir á íþróttasvæði KR. Jónas segir að fyrirmyndin sé sótt til Norðurlanda þar sem tíðkist að tengja saman íþróttasvæði og þjónustu við byggð. Fór hann meðal annars í heimsókn til íþróttafélagsins Lilleström í Noregi til þess að skoða aðstæður. Þá bendir hann á að sé aðalvellinum snúið við skapist töluvert pláss á jaðri svæðisins við Flyðrugranda og Kaplaskjólsveg. Hann bendir þó einnig á að að tillögurnar sem sjá má hér fyrir ofan geti þó vel breyst í deiliskipulags- og kynningarferlinu sem fram undan er. Hann segir KR leggja áherslu á að vinna ferlið í samvinnu við samfélagið í Vesturbænum. Hann sé þó á því að tillögurnar sem fyrir liggja séu til þess fallnar að bæta og fegra umhverfið í grennd við íþróttasvæðið.Jónas Kristinsson er framkvæmdastjóri KR.„Það á auðvitað eftir að vinna þetta í sátt við umhverfið, teikna þetta til og fara með þetta í gegnum ferlið. Þetta gæti vel tekið töluverðum breytingum. Aðalatriðið er auðvitað að vinna þetta þannig að það sé sátt í umhverfinu og við horfum á þetta þannig að við getum stækkað og dafnað inn í framtíðina,“ segir Jónas.Hugsanlega byggt í áföngum Jónas segir að vinna við deiliskipulag og kynningu í hverfinu muni standa fram á vor. Aðspurður um hvenær megi búast við að framkvæmdir hefjist segir Jónas að of snemmt sé að segja til um það. Hann bendir þó á að mögulega sé það skynsamlegt að byggja svæðið upp í áföngum, þannig megi byrja á knatthúsinu, færa sig svo yfir í knattspyrnuvöllinn og félagsaðstöðu áður en að lokum verði farið í að byggja íbúðirnar og rými fyrir aðra þjónustu. Samkvæmt fyrrgreindri viljayfirlýsingu eru borgin og KR sammála um að virðisaukinn sem kunni að verða til vegna aukins byggingamagns skuli renna til uppbyggingar fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf í Vesturbæ á vegum KR. Verður KR eigandi þeirra bygginga. Fáist nýtt deiliskipulag samþykkt er gert ráð fyrir því að gengið verði frá formlegum samningi milli Reykjavíkurborgar og KR um framkvæmdina þar sem fram komi áætlaður stofnkostnaður mannvirkja KR, forgangsröðun þeirra og frekari útfærsla, virðisauki vegna aukins byggingarréttar, tímaáætlun verkefnisins og leigusamningi við Reykjavíkurborg á viðkomandi mannvirkjum vegna hverfistengdrar þjónustu.
Skipulag Mest lesið Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Ölvun og þjófnaðir Innlent Fleiri fréttir „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Sjá meira