Pippa Middleton gengur í það heilaga Anton Egilsson skrifar 20. maí 2017 11:26 Pippa Middleton er glæsileg í brúðkarkjól frá Giles Deacon.
Pippa Middleton, systir Katrínar Middleton, hertogaynju af Cambridge, mun síðar í dag ganga í það heilaga með unnusta sínum, bankamanninum James Matthews. Brúðkaupið verður hið glæsilegasta en vígslan mun eiga sér stað í kirkju heilags Markúsar í þorpinu Englefield í Berkshire, nálægt þeim stað sem Pippa ólst upp. Veislan verður svo haldin í garði foreldra hennar. Kostnaður við brúðkaupið er sagður vera um 250 þúsund pund eða tæpar 33 milljónir króna. Pippa og Matthews trúlofuðu sig síðasta sumar en þá höfðu þau einungis verið saman í tæpt ár. Þau áttu að vísu í stuttu ástarsambandi árið 2012 en í millitíðinni trúlofaðist Pippa bankamanninum Nico Jackson en upp úr trúlofun þeirra slitnaði. Gestir eru þegar farnir að streyma í brúðkaupið en í hópi brúðkaupsgesta eru Vilhjálmur Bretaprins og Katrín og þá mun Georg litli prins aðstoða Pippu frænku og halda á slöri hennar þegar hún gengur inn kirkjugólfið. Þá verður Karlotta litla ein brúðarmeyja. Harry prins er mættur á svæðið en honum var boðið ásamt kærustu sinni, bandarísku leikkonunni Meghan Markle. Útlit er fyrir að Markle muni þó ekki láta sjá sig við athöfnina en Harry mætti til brúðkaupsins ásamt bróður sínum Vilhjálmi.Brúðarkjóllinn frá Giles DeaconMikil leynd hefur hvílt yfir því hver hannar brúðarkjól Pippu og höfðu ýmsir hönnuðir verið nefndir til sögunnar. Nú liggur það hins vegar ljóst fyrir að kjóllinn sem Pippa klæðist var hannaður af Giles Deacon og er hann afskaplega glæsilegur. „Ég var í sjöunda himni með að fá að vinna að brúðarkjólnum með Pippu,” sagði Giles Deacon í samtali við Telegraph. Pippa komst fyrst í kastljós fjölmiðla í brúðkaupi Katrínar, systur sinnar, og Vilhjálms prins árið 2011. Þar vakti hún gríðarlega athygli og gengu sumir svo langt að segja að hún hafi stolið senunni.
Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira