Breskir læknar hætta að skrifa upp á smáskammtalækningar Atli Ísleifsson skrifar 22. júlí 2017 10:37 Yfirmaður breska heilbrigðiskerfisins segir að smáskammtalækningar séu í besta falli lyfleysa og misnotkun á dýrmætu fé ætluðu til heilbrigðiskerfisins. Vísir/Getty
Breskir læknar munu hætta að skrifa upp á smáskammtalækningar og sautján hluti til viðbótar samkvæmt drögum að nýjum viðmiðunarreglum innan breska heilbrigðiskerfisins. Ástæður þess að hætt verður að skrifa upp á slíkt eru meðal annars að þau eru talin gera lítið gagn og að lítill árangur þeirra svari ekki kostnaði. Í frétt Guardian segir að hinar nýju reglur séu liður í sparnaðaraðgerðum innan breska heilbrigðiskerfisins (NHS). Með þeim er vonast til að hægt verði að spara rúmlega 190 milljónir punda, um 26 milljarða króna, á ári hverju. Drögin eru nú til umsagnar almennings. Þar kemur fram að kostnaðurinn við að skrifa upp á smáskammtalækningar hafi numið rúmlega 92 þúsund punda, um 12 milljónir króna, árið 2016 og að minnsta kosti 79 milljónir króna á síðustu fimm árum. Simon Stevens, yfirmaður NHS, kynnti drögin fyrr í vikunni og sagði smáskammtalækningar, eða hómópatíu, í besta falli vera lyfleysu og misnotkun á fé NHS, sem sé að skornum skammti. Meðal annara hluta sem hætt verður að skrifa upp á eru ýmis grasalyf, Omega-3 fitusýrur og ýmist smyrsl.
Mest lesið Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Innlent Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Innlent Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Innlent Seinkun á tölum ekki að ástæðulausu Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Innlent Notkun Íslendinga á ADHD-lyfjum þrefaldaðist á tíu árum Innlent Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins