Kristína Spánarprinsessa sýknuð í skattamáli atli ísleifsson skrifar 17. febrúar 2017 12:59 Inaki Urdangarin, Kristína Spánarprisessa og Diego Torres. Vísir/AFP
Dómstóll á Mallorca á Spáni hefur sýknað Kristínu Spánarprinsessu af ákæru um skattsvik. Eiginmaður hennar, Inaki Urdangarin, hlaut hins vegar sex ára og þriggja mánaða dóm í málinu. Hin 51 árs Kristína er systir Filippusar Spánarkonungs og sjötta í erfðaröðinni. Urdangarin var sakaður um að hafa nýtt tengsl sín við konungsfjölskylduna til að auka viðskiptatekjur sem hann nýtti svo til einkaneyslu. Málið kom upp árið 2010 og var álitið tákn um meinta spillingu hástéttarinnar. Auk Kristínar og Urdangarin voru sextán manns til viðbótar ákærðir, meðal annars fyrrverandi ráðherrann Jaume Matas sem hlaut þriggja ára og átta mánaða dóm. Viðskiptafélagi Urdangarin, Diego Torres, var dæmdur til átta og hálfs árs fangelsisvistar. Níu sakborninganna voru alls sýknaðir. Kristína, sem býr í Sviss, er sú fyrsta í konungsfjölskyldunni sem dregin er fyrir dóm frá endurreisn konungsveldisins árið 1975. Filippus konungur svipti Kristínu og Urdangarin titlum sínum sem hertogi og hertogaynja af Mallorca árið 2015. Þau neituðu bæði sök í málinu.
Kóngafólk Mest lesið Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Fleiri fréttir Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Sjá meira