Puigemont hættir við flutning ræðu sinnar Atli Ísleifsson skrifar 26. október 2017 13:41 Mikill mannfjöldi var saman kominn fyrir utan héraðsþing Katalóníu í dag. Vísir/AFP
Talsverð ringulreið ríkir í Katalóníu eftir að Carles Puigdemont, forseti heimastjórnarinnarinnar, ákvað að hætta við ræðu sem hann hugðist flytja í katalónska héraðsþinginu í dag. Búist var við að Puigdemont myndi leysa upp þing Katalóníu og boða til nýrra kosninga sem myndu fara fram 20. desember. Frá þessu greindu fjöldi spænskra fjölmiðla fyrr í dag. Upphaflega stóð til að Puigdemont myndi flytja ræðuna klukkan 11:30 að íslenskum tíma, en henni var síðar frestað um klukkustund. Síðar var greint frá því að Puigdemont hafi hætt við að flytja ræðu sína. Spænska þingið kemur saman á morgun til að ræða hvort að beita eigi 155. grein stjórnarskrárinnar og afturkalla sjálfstjórn Katalóníu. Samband stjórnvalda í Madríd og héraðsstjórnar Katalóníu versnaði til muna eftir að mikill meirihluti þeirra sem þátt tóku í þjóðaratkvæðagreiðslu 1. október greiddu atkvæði með því að lýsa yfir sjálfstæði. Sambandssinnar sniðgengu atkvæðagreiðsluna.
Sjálfstæðisbarátta Katalóníu Tengdar fréttir Katalónar sagðir ætla að kalla til kosninga Carles Puigdemont, forseti Katalóníu, er sagður ætla að kalla til kosninga í héraðinu þann 20. desember. 26. október 2017 11:09 Mest lesið Nokkrar milljónir horfnar á örfáum vikum Innlent Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Erlent Keypti stól í Góða hirðinum sem reyndist fágætur gripur Innlent Líta eigi á eignir landsbyggðafólks í Reykjavík sem sumarbústaði Innlent Sendi síðasta bréfið degi áður en fellibylurinn gekk yfir Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent Óttast að námsbraut verði undir verði af frumvarpinu Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent Tveir fá heilablóðfall á hverjum degi á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Stúlka fannst á lífi í kassa í órafjarlægð frá heimili sínu Kona ákærð fyrir ránið í Louvre Demókratar vilja yfirheyra Andrew Enn staðráðin í að lenda geimförum á tunglinu með Starship Gera sex hundruð gervihnetti fyrir „Gullhvelfinguna“ Sagður hafa skipað hernum að gera árásir í Venesúela Ljóst að D66 varð stærri en flokkur Wilders Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fá sæti við borðið Æðsti lögmaður ísraelska hersins segir af sér vegna leka Segir Repúblikönum að beita kjarnorkuúrræðinu Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Orðin hæsta kirkja í heimi Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Kallar Biden ljótan að utan sem innan og vill hann í fangelsi Sjö hundruð drónum og eldflaugum skotið að Úkraínu Telja Kínverja geta fjarstýrt strætisvögnum af sömu gerð og Strætó notar Fordæmalaus eyðilegging vegna Melissu Losa hreðjatakið í eitt ár Útlit fyrir að hnífjafnt verði í Hollandi í fyrsta skipti Svipt barnabótunum vegna flugmiðakaupa Vill hefja tilraunir með kjarnavopn að nýju Fleiri handteknir vegna ránsins í Louvre „Samþykki“ tekið upp í frönskum lögum í kjölfar Pelicot málsins Útlit fyrir nauman sigur frjálslyndra og fyrsta samkynheigða forsætisráðherra landsins Fjórir látnir á Jamaíku og tuttugu í Haítí Hafa játað aðild að ráninu í Louvre Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Sjá meira
Katalónar sagðir ætla að kalla til kosninga Carles Puigdemont, forseti Katalóníu, er sagður ætla að kalla til kosninga í héraðinu þann 20. desember. 26. október 2017 11:09