Útlendingastofnun ræður öryggisvörð í afgreiðsluna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. ágúst 2017 09:30 Öryggisvörðurinn stóð vaktina við Útlendingastofnun þegar ljósmyndara bar að garði. Vísir/Anton Brink
Starfsfólk Útlendingastofnunar hafði verið varað við því að maður sem mætti í afgreiðsluna í Skógarhlíð í hádeginu síðastliðinn föstudag kynni að vera hættulegur. Af þeim sökum gerði það stutt hlé á störfum sínum, upplýsti hvert annað um stöðu mála og kallaði til lögreglu. Þetta segir Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi hjá Útlendingastofnun, í svari við fyrirspurn Vísis. Ákveðið hefur verið að ráða öryggisfulltrúa til starfa í afgreiðslu stofnunarinnar í kjölfar atviksins.Yfirgáfu afgreiðsluna öll sem eitt Agnes Vala Bryndal var ein þeirra sem beið eftir afgreiðslu hjá stofnuninni umrætt skipti. Hún lýsti í kvöldfréttum Stöðvar 2 viðbrögðum fólks í afgreiðslunni þegar starfsfólk yfirgaf allt í einu afgeiðsluna, öll sem eitt og án skýringa. Eftir stóð einn maður í afgreiðslunni. Agnes sagðist hafa vonað að maðurinn væri ekki vopnaður. Enginn sagði neitt og fólk sem beið sat grafkyrrt. Starfsmaður skellti í lás og skömmu seinna heyrðist sírenuvæl. Allt í einu var sérsveitin mætt og maðurinn tekinn fastur. Honum var svo sleppt eftir yfirheyrslu. „Starfsfólk brást við á hárréttan hátt með því að gera stutt hlé á störfum sínum til að upplýsa hvert annað og hringja á lögregluna. Starfsmenn tóku síðan aftur til starfa í afgreiðslu,“ segir Þórhildur.Aldrei læst inni „Atvikið átti sér stað eftir opnunartíma og stóð starfsmaður við dyrnar til að gæta þess að ekki kæmu fleiri inn á meðan lokið var við að afgreiða þá sem höfðu komið fyrir lokun.“ Það hafi hins vegar ekki verið rétt að fólk hafi verið lokað inni í afgreiðslunni því ekki þurfi lykil til að opna dyrnar innan frá. Í kjölfar atviksins hafi verið ákveðið að ráða öryggisvörð í afgreiðslu Útlendingastofnunar og verða viðbragðsáætlanir yfirfarnar.
Tengdar fréttir Óskað eftir aðstoð sérsveitar lögreglu Þeir sem biðu eftir afgreiðslu hjá Útlendingastofnun vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar afgreiðslufólk hvarf. Eitt vitni óttaðist að maður sem beið afgreiðslu væri vopnaður. 19. ágúst 2017 08:55 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
Óskað eftir aðstoð sérsveitar lögreglu Þeir sem biðu eftir afgreiðslu hjá Útlendingastofnun vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið þegar afgreiðslufólk hvarf. Eitt vitni óttaðist að maður sem beið afgreiðslu væri vopnaður. 19. ágúst 2017 08:55