Eftirlýsti kaupsýslumaðurinn hyggst bjóða í tískukeðjur Kaupþings aftur Daníel Freyr Birkisson skrifar 23. nóvember 2017 14:47 Ajay Khaitan. Vísir/AFP
Fjárfestingasjóður Ajay Khaitan, Emerisque Brands, hefur áhuga á að endurvekja viðræður við Kaupþing ehf. um kaup á tískukeðjunum Oasis, Warehouse og Coast. Þetta kemur fram hjá vefmiðli Retail Week. Khaitan er eftirlýstur af Interpol og hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur honum fyrir að hafa lagt fram fölsuð skjöl í tengslum við deilu um fjármögnun sem nær aftur um 30 ár. Kaupþing hafði áður hætt við fyrirhugaða sölu til Emerisque eftir að í ljós kom að eigandinn væri eftirlýstur. Talið er að boðið hafi numið um 60 milljónum punda, rúmlega 8,3 milljörðum íslenskra króna samkvæmt gengi dagsins í dag.Sjá einnig: Eftirlýstur kaupsýslumaður vill tískukeðjur frá KaupþingiKhaitan hefur alla tíð neitað þeim sökum sem á hann hafa verið bornar, en þær má rekja aftur til fjársvika í indversku borginni Kolkata árið 1988. Talsmaður hans segir að deilan hafi snúið að sjö þúsund punda kröfu, 972 þúsund krónur, og að hún hafi verið greidd fyrir löngu síðan. Talsmaðurinn bætti við að Khaitan hefði flutt til Bretlands fyrir 20 árum og hefur ekki getað farið aftur til Indlands til að vera viðstaddur fjölda réttarhalda vegna þessa máls, sem hefur orðið til þess að handtökuskipunin var gefin út. Félagið Aurora Fashions rekur Warehouse, Oasis og Coast en það hefur verið í eigu Kaupþings frá 2009. Áður voru keðjurnar í eigu Mosaic Fashions, en Baugur Group var stærsti eigandi þess félags, en það varð gjaldþrota í kjölfar hrunsins. Keðjurnar reka um 750 verslanir víða um heim og eru þær með um 5.000 starfsmenn á sínum snærum. Heimildarmenn Retail Week segja að viðræður séu á byrjunarreit og að mikil vinna sé framundan eigi samþykkt að nást.
Tengdar fréttir Eftirlýstur kaupsýslumaður vill tískukeðjur frá Kaupþingi Viðræðurnar snúast um 60 milljónir punda. 11. september 2017 10:25 Kaupþing hætt við að selja eftirlýstum kaupsýslumanni tískukeðjurnar Kaupþing hefur hætt við fyrirhugaða sölu á fataverslunarkeðjunum Coast, Warehouse og Oasis eftir að í ljós kom að eini tilboðsgjafinn er á hlaupum undan armi laganna. 9. október 2017 06:31 Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira
Eftirlýstur kaupsýslumaður vill tískukeðjur frá Kaupþingi Viðræðurnar snúast um 60 milljónir punda. 11. september 2017 10:25
Kaupþing hætt við að selja eftirlýstum kaupsýslumanni tískukeðjurnar Kaupþing hefur hætt við fyrirhugaða sölu á fataverslunarkeðjunum Coast, Warehouse og Oasis eftir að í ljós kom að eini tilboðsgjafinn er á hlaupum undan armi laganna. 9. október 2017 06:31