Fótbolti

Túnis og Morokkó á HM

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Stuðningsmenn Túnis verða í Rússlandi
Stuðningsmenn Túnis verða í Rússlandi Mynd/twitter/fifa
Túnis og Morokkó tryggðu sæti sitt í lokakeppni Heimsmeistaramótsins í Rússlandi þegar undankeppni Afríkuþjóða lauk í dag.

Áður höfðu Nígería, Senegal og Egyptaland tryggt sér þrjú af sætunum fimm sem í boði voru fyrir Afríkuþjóðir.

Túnis gerði markalaust jafntefli við Líbíu og tryggði sér með því efsta sæti A-riðils, stigi á undan Congo.

Morokkó vann Fílabeinsströndina 2-0 og sigraði C-riðilinn.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×