Söguleg tímamót í Víglínunni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 18. nóvember 2017 10:00
Þau sögulegu tímamót eru framundan í íslenskum stjórnmálum að í fyrsta skipti í sjötíu og þrjú ár fer Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn með sósíalistum, en það gerðist síðast árið 1944, nokkrum mánuðum eftir að Ísland varð sjálfstætt ríki. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands verður meðal gesta Heimis Más Péturssonar fréttamanns í Víglínunni á Stöð 2 og Vísi í dag til að ræða þetta og stjórnarmyndanir yfirleitt. Reiknað er með að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks verði kynntur í byrjun næstu viku og að ný stjórn taki við um miðja vikuna. Stjórnin er orðin umdeild nú þegar, sérstaklega meðal Vinstri grænna. Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður flokksins hefur verið meðal hörðustu andstæðinga Sjálfstæðisflokksins. Hún verður gestur Víglínunnar ásamt Þorsteini Víglundssyni þingmanni Viðreisnar. Þorsteinn hefur lýst því að með ríkisstjórn þessara þriggja flokka verði skjaldborg slegin um óbreytt ástand og framtíðinni slegið á frest. Víglínan er í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi kl. 12:20.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Sjá meira