Vetrarspá Siggu Kling – Vogin: Forystusauður og færð hugmyndir á færibandi 3. nóvember 2017 09:00
Elsku Vogin mín, þú ert á svo merkilegum kaflaskiptum í lífi þínu að þolinmæði er það eina sem þú þarfnast til að fá það í fangið sem þú ert búin að bíða eftir - og jafnvel búin að fá svo margt nú þegar sem gerir lífið þitt skemmtilegra. Þú ert mikilmenni, svo láttu ekki rykkorn verða þér að falli. Það er mikill munur á þráhyggju og því að vilja eitthvað inn í líf sitt og ef þú lest orðið þráhyggja þá þýðir það að þú hugsar of stíft um það sem þú þráir en sérð í rauninni ekki það sem þú hefur. Þú ert forystusauður og færð hugmyndir á færibandi, elskar að taka ábyrgð og nýtur þess svo sannarlega. Mitt álit er að Vogin sé ekki sú týpa sem ekki getur tekið ákvörðun eins og já eða nei, þetta eða hitt, heldur er hún með svo margar ákvarðanir í hausnum. Þú þarft bara að velja hvaða ákvörðun kemur þér best núna í augnablikinu og taka hana næst. Það er svo mikilvægt að þú hafir tónlist í kringum þig - þú bara þrífst algjörlega á því, annars fyllistu and- og orkuleysi og það þolirðu ekki. Svo settu bara allt í botn núna. Ef ég ætti að gefa þér eitthvað sérstakt orð þá ertu leiðsögumaður til að leiðbeina öðrum með orðum og gjörðum og fólk hlustar svo sannarlega á þig og yfirleitt hefurðu svo fallega rödd. En þegar þú verður reið þá þarf maður að biðja bænirnar sínar. Þú gætir brotið stól eða brotið hjörtu, en það er mjög sjaldgæft að þú missir stjórn á skapi þínu og ég bið þig svo innilega að hefna þín ekki á neinum þó hann eigi það skilið. Þú ert að fara inn í mikla velferð peningalega séð, og mundu að peningar eru bara hreyfiafl, svo leyfðu þér bara eyða og ekki óttast að þú munir ekki afla nægilega því hugurinn er búinn að reika svo langt fram í tímann: Hvað á ég að gera um jólin eða hvernig fer þetta eða hitt. Þetta hindrar þig bara og dregur þig inn í skel og verður til þess að þú hefur ekki samband við fólk eins og þú ert vön og þarfnast að hafa samband við, en vinir þínir gleyma þér samt aldrei því þú ert ógleymanleg. Í ástinni virðist vera svolítið eldfjall undir þér. Þú hefur svo mikla þrá fyrir rómantík og að elska og þú ert rómantískasta merkið. En ef rómantíkin er skipulagt excel-skjal þá deyrðu. Það er þitt að gefa rómantík og það er lögmál að ef þú gefur frá hjartanu þá orku þá gefur veröldin þér rómantík og ást frá þeim sem þú átt skilið. Setningin til þín er: Lífið er rómantík – Vor í Vaglaskógi (Kaleo) Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, minn meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“