Lykillinn þreyta gagnvart undirliggjandi spillingarumræðu
Miklar viðræður hafa verið í allan dag milli leiðtoga flokkanna og samkvæmt heimildum Vísis hafa þær viðræður þróast í þessa átt. Heimildarmaður Vísis orðar það svo að lykillinn að slíku mynstri er að stjórnin yrði Panamaprinsalaus, það er metið svo að þó spillingarmál tengd Panamaskjölunum hafi ekki verið ofarlega á baugi í kosningabaráttunni séu þau undirliggjandi ástæða þess að tvær síðustu ríkisstjórnir hafa sprungið í loft upp. Fólk bara er búið að fá nóg af slíku, að sögn eins viðmælanda Vísis. Nú ríður á að fá frið í stjórnmálunum. Er það metið svo að það yrði aldrei friður um ríkisstjórn með þá Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð innanborðs.

Engin óyfirstíganleg ágreiningsefni
Þeir sem Vísir talaði við voru á því að þetta gæti verið snjall leikur, Sjálfstæðisflokkurinn hafi staðið fyrir margvíslegum úrbótum fyrir þrifum að mati viðmælanda blaðamanns. En, nú sé hægt að skoða aðgerðir í húsnæðismálum, endurskipulagning fjármálakerfis að teknu tilliti til vaxtastefnu, samfélagsbanki var nefndur í eyru blaðamanns Vísis, lífeyrissjóðakerfið og svissneska leiðin svokölluð – menn sjá ekkert því til fyrirstöðu að klára þessi mál þó aðkoma svo margra flokka að ríkisstjórnarsamstarfi væri reyndin. Ekki ætti að þurfa að vera djúpstæður ágreiningur um endurskoðun stjórnarskrár sem og fiskveiðikerfisins. Klára þessi mál, segir einn viðmælandi Vísis í baklandinu, sem er mjög áfram um að á þetta verði látið reyna.
Jafnréttismálin í góðu horfi
Þá horfa heimildarmenn Vísis einnig til þess að erfiðar kjaraviðræður eru handan horns en bæði ASÍ og SA ættu greitt talsamband inn í ríkisstjórn Vinstri grænna, Samfylkingar, Framsóknarflokks, Viðreisnar, Pírata og Flokks fólksins. Og síðast en ekki síst jafnréttismálin því ef af þessu yrði eru meiri líkur en minni á að fleiri konur yrðu ráðherrar í slíkri ríkisstjórn en ekki. Ein helsta ástæða þess að ekki eru fleiri konur á þingi, sem svo mjög hefur verið gagnrýnt, er samsetning þingmannahópa Miðflokks og Sjálfstæðisflokks.
Ýmsir hafa túlkað niðurstöður kosninganna sem ákall um aukið samtal milli flokka. Sex flokka ríkisstjórn væri svar við slíku kalli. Liggi fyrir samkomulag milli þessara flokka hvað þetta varðar og innan tíðar er í raun ekkert því til fyrirstöðu að Guðni Th. Jóhannesson forseti lýðveldisins feli Katrínu Jakobsdóttur myndun slíkrar ríkisstjórnar.