Erlent

Ætlar ekki að boða til kosninga

Samúel Karl Ólason skrifar
þing Katalóníu mun ákveða hvort að héraðið muni lýsa yfir sjálfstæði.
þing Katalóníu mun ákveða hvort að héraðið muni lýsa yfir sjálfstæði. Vísir/AFP
Carles Puigdemont, forseti Katalóníu, ætlar ekki að boða til kosninga í desember eins og fjölmiðlar í Katalóníu höfðu haldið fram. Þess í stað ætlast hann til þess að þing Katalóníu muni ákveða hvort að héraðið muni lýsa yfir sjálfstæði. Yfirvöld á Spáni ætla sér að fella niður sjálfstjórn Katalóníu.

Puigdemont hafði kallað eftir sjálfstæði eftir nokkurskonar þjóðaratkvæðagreiðslu í Katalóníu í byrjun mánaðarins. Hann lýsti því þó strax yfir að sjálfstæði yrði ekki lýst yfir strax og kallaði eftir viðræðum við Madrid.

Öldungadeildarþing Spánar mun funa á morgun og ákveða hvort að 155. grein stjórnarskrár landsins verði beitt til þess að fella niður sjálfstjórn Katalóníu. Þing Katalóníu mun svo bregðast við þeirri ákvörðun sem tekin verður í Madrid á morgun.

Þá vilja yfirvöld Spánar einnig taka yfir stjórn lögreglu Katalóníu, þingsins og opinberrar sjónvarsstöðvar héraðsins.

Varaforseti Katalóníu segir þó að það eina í stöðunni fyrir héraðið vera að lýsa yfir sjálfstæði. Hótanir stjórnvalda hafi leitt til þess. Oriol Junqueras segir það einu leiðina til að verja réttindi íbúa héraðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×