Gátan um Barnaby ráðin Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. október 2017 07:14 Barnaby Joyce í þungum þönkum á ástralska þinginu. Visir/Getty
Ástralski aðstoðarforsætisráðherrann Barnaby Joyce og fjórir aðrir þingmenn á ástralska þinginu hafa verið sviptir þingsætum sínum sökum þess að fólkið var með tvöfaldan ríkisborgararétt. Slíkt er andstætt áströlsku stjórnarskránni. Meirihlutinn á ástralska þinginu hefur hangið á bláþræði og brotthvarf Joyce gerir það að verkum að meirihlutinn er fallinn. Malcolm Turnbull, forsætisráðherra Ástralíu, segir úrskurðinn mikið áhyggjuefni en vonar þó að þetta leiði ekki til falls ríkisstjórnar hans. Joyce ætlar þó að bjóða sig fram í sérstökum aukakosningum sem halda á innan tíðar en málið hefur vakið mikla athygli í Ástralíu síðustu mánuði. Aðstoðarforsætisráðherrann var með nýsjálenskt ríkisfang auk þess ástralska en segist ekki hafa vitað af því þegar hann bauð sig fram á þing. Hann er fæddur í Ástralíu en fékk nýsjálenska ríkisfangið í gegnum föður sinn. „Ég hafði enga ástæðu til þess að vita að ég væri ríkisborgari í öðru landi en Ástralíu. Þannig er þessu háttað. Nú verð ég bara að gæta þess að gráta ekki ofan í bjórinn minn,“ segir aðstoðarforsætisráðherrann við fjölmiðla ytra.
Mest lesið Vonara að þetta dugi til Innlent Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Innlent „ÁTVR dugar“ Innlent Gul viðvörun: Fyrsta trampólínið þegar fokið Veður Enginn málefnalegur ágreiningur skýri brotthvarf bæjarstjóra Innlent Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi Innlent Björgólfur lýkur hópmálsókn með milljarðssátt Innlent Ákærður fyrir að nauðga barnungri hálfsystur sinni Innlent „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa Æðsti klerkurinn stýrði útför íranska forsetans Lætur líklega reyna aftur á þungunarrofsfrumvarpið Rússar sagðir hafa skotið geimvopni á sporbaug Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Kanna hvar Perry fékk ketamínið Æfa notkun „taktískra“ kjarnorkuvopna Sjá meira