Innlent

Vonar að þetta dugi til

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Halla Tómasdóttir í kappræðum Stöðvar 2.
Halla Tómasdóttir í kappræðum Stöðvar 2. Vísir/vilhelm

Halla Tómasdóttir segir ljóst að frammistaða hennar í kappræðum hafi haft mikil áhrif á fylgi hennar. Hún mælist nú önnur í skoðanakönnunum með rúmlega 18 prósent fylgi, en mældist aðeins með um 5 prósent fylgi fyrr í mánuðinum. 

„Þetta voru ánægjulegar fréttir, við höfum fundið fyrir vaxandi meðbyr og þessar tölur staðfesta það. Það er alltaf ánægjulegt að sjá svona þó ég reyni að láta skoðanakannanir ekki ráða för,“ segir Halla innt eftir viðbrögðum við nýjustu könnun Maskínu sem birt var í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.

Nú er aðeins rúm vika í kosningar. Sama atburðarás virðist ætla að endurtaka sig í þessum kosningum og kosningunum sem fóru fram 2016: Halla Tómasdóttir fer með himinskautum síðustu vikur fyrir kosningar. Það dugði ekki til árið 2016 en stóra spurningin er hvort þetta dugi til núna.

„Við lærðum 2016 hversu miklu máli það skiptir að hitta eins margt fólk og þú getur í eigin persónu. Það tekur tíma, það er þolinmæðisvinna. Og hversu mikilvægar kappræðurnar eru.  Ég hef alltaf haft þá trú að þegar fólk fái að sjá okkur og kynnast hver við erum þá myndi fylgið vaxa,“ segir hún um tímapunkt fylgisaukningarinnar.

„Ég þakka RÚV fyrir að hafa staðið einstaklega vel að kappræðum 12 frambjóðenda, það var ekki einfalt verkefni og mér fannst þau gera það vel. Mér fannst ég heyra það á fólki að það var þakklátt fyrir þetta tækifæri.“

Spurð út í bylgjuna og hvort hún dugi segir Halla:

„Það er allavega markmiðið, ég finn fyrir miklum krafti. Við önnum ekki eftirspurn, því miður er bara vika eftir því það er mikill áhugi hjá fólki og vinnustöðum um allt land. Ég geri mitt besta til að hitta eins marga og ég get og svo velur fólkið forsetann. Ég trúi því að við séum þar öflugur valkostur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×