Handbolti

„Biðin hefur verið erfið á köflum“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarki Már átti afar góðan leik gegn Svíum.
Bjarki Már átti afar góðan leik gegn Svíum. vísir/stefán
Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk þegar Ísland lagði Svíþjóð að velli, 31-29, í vináttulandsleik í Laugardalshöllinni í gær.

„Við spiluðum góða vörn og hlupum vel til baka. Við héldum Svíunum í skefjum og vorum þéttir í vörninni,“ sagði Bjarki í samtali við Vísi í dag.

Margir ungir leikmenn fengu tækifæri í íslenska liðinu í gær, m.a. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Daníel Þór Ingason og Ýmir Örn Gíslason sem hafa leikið vel í Olís-deildinni undanfarin tvö tímabil.

Þrátt fyrir talsverðar breytingar á íslenska hópnum gengu hlutirnir vel fyrir sig í leiknum í gær, eiginlega vonum framar.

„Ég held að það sé óhætt að segja það. Maður var forvitinn að vita hvernig þeir kæmu inn í þetta og þeir gerðu það vel,“ sagði Bjarki sem er, þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall, einn af þeim elstu í íslenska hópnum.

Bjarki Már skorar eitt fimm marka sinna gegn Svíum.vísir/eyþór
„Það er bara gaman. Maður fær að miðla af reynslunni, þessari litlu sem maður hefur. Ég leit yfir hópinn þegar hann kom út og mér sýndist ég bara vera með elstu mönnum. Þetta er ungt og ferskt lið sem er í mótun.“

Þótt Bjarki sé búinn að vera nokkuð lengi að eru landsleikirnir ekkert sérstaklega margir, eða 35 talsins. Einhvern tímann hefði leikmaður sem hefur gert jafn góða hluti með sínu félagsliði og Bjarki átt fleiri landsleiki en hann er svo „óheppinn“ að spila á sama tíma og einn besti hornamaður handboltasögunnar, Guðjón Valur Sigurðsson.

Bjarki segir biðina eftir tækifærinu með landsliðinu hafa á stundum tekið á.

„Hún hefur verið erfið á köflum. Ég er búinn að vera inn og út úr hópnum síðan 2012 og það er gaman að hafa loksins fengið að fara á stórmót [HM 2017]. Það var alltaf stóri draumurinn,“ sagði Bjarki.

„Maður hefur ekkert stjórn á því hvernig hópurinn er valinn eða hverjir eru að spila. Hvort maður er heppinn eða óheppinn að vera á sama tíma og Gaui veit ég ekki. Mér finnst mjög gaman að vera með honum í liði og horfa á hann spila. Þetta ferli hefur ekkert verið neikvætt.“

Bjarki Már reynir skot að marki Svía.vísir/eyþór
En finnst Bjarka hann hafa fengið ósanngjörn tækifæri með landsliðinu?

„Já og nei, ég hef bara haldið því fyrir mig. Ég er ekkert að pæla í því. Ég horfi bara fram á veginn. Ég reyni að standa mig, bæði með mínu félagsliði og svo þegar ég fæ tækifæri með landsliðinu. Ég geri allt sem í mínu valdi stendur til að halda mér í hópnum. Það er markmiðið,“ sagði Bjarki sem leikur með Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni.

Framundan er EM í Póllandi í janúar þar sem Ísland er í riðli með Króatíu, Serbíu og Svíþjóð. Bjarki segist spenntur fyrir framhaldinu hjá íslenska liðinu.

„Ég er alveg óhræddur að segja að ef þetta þróast rétt og við náum að móta ágætis lið erum við með hæfileika sem geta komið okkur í topp átta í heiminum á næstu árum. Við erum reyndar ekki búnir að samræma neitt svar en ég held að þetta sé vel mögulegt,“ sagði Bjarki að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×