Fullorðna fólkið sleppir fram af sér beislinu 30. október 2017 14:00 Rebekka Hlín Rúnarsdóttir hefur sérstök tengsl við hrekkjavökuna. Bæði er hún mikið fyrir búninga og svo á hún afmæli 31. október. MYND/Anton Brink
Andlitsmálning Rebekku er vísun í hinar svokölluðu sykurkúpur eða „sugar skulls“ sem voru lagðar á leiði á hrekkjavökunni í Rómönsku-Ameríku. Heldurðu upp á hrekkjavöku? Ég fagna hrekkjavökunni samhliða afmælinu mínu sem ber víst upp á 31. október ár hvert. Ég á góðar minningar úr grunnskóla þegar mesta áskorunin var að finna hræðilegustu hryllingsmyndina á vídeóleigunni til þess að horfa á í afmælisveislunni minni. Þó finnst mér graskeraútskurður og hryllilegir búningar það besta við þessa hátíð.Hvaða merkingu hefur hrekkjavakan fyrir þér? Hrekkjavakan er aldagömul hefð sem einungis nýlega hefur fest rætur hér á landi. Þó að yfirbragðið hér sé kannski meira tengt tiktúrum stórverslana sem vilja selja okkur varning þá má ekki gleyma rótum hrekkjavökunnar, nándinni við þá framliðnu. Hér á Íslandi er sterk hefð fyrir mórum, skottum og ýmsum öðrum ærsladraugum og því er ekki fjarri lagi að halda hér upp á ‘dag hinna dauðu’ eins og fjölmörg önnur lönd gera. Afmælisbarn hrekkjavökunnar sem Laugardagsbarónessa. Finnst þér gaman að fara í búning? Ég elska að klæða mig í búninga og finn mér alltaf ný tilefni fyrir svoleiðis. Við búum orðið svo vel hér á Íslandi að eiga tvo búningadaga, öskudag og hrekkjavöku, og því er engin afsökun fyrir fólk að taka ekki þátt allavega annan daginn. Hrekkjavakan fyrir mér er orðin sá dagur sem fullorðna fólkið sleppir fram af sér beislinu og bregður sér í ýmis gervi, sumir vinna hörðum höndum að búningum mánuðum saman, enda búningasamkeppnir orðnar árlegur viðburður.Býrðu til þína eigin búninga? Ég hef reynt það já, þó ég hafi kannski ekki verið jafn metnaðarfull og margir sem ég þekki og alls ekki jafn hæfileikarík með latex og gerviblóð. Ég hef þó komist að því að pallíettur og glimmer geta fleytt manni ansi langt. Hér má sjá hugmynd að búningi taka á sig mynd. Pípuhatturinn vísar bæði í kabaretthefðina og í hinn svokallaða Baron Samedi eða Laugardagsbaróninn sem er þekkt minni úr vúdútrú. Hvernig færðu útrás fyrir búningagleðina ef það er hvorki hrekkjavaka né öskudagur? Ég er svo heppin að vera hluti af burlesque danshópnum „Dömur og herra“ sem heldur reglulega kabarettkvöld. Atriðin í kabarett snúa oftar en ekki að flottum búningum og því hafa ófáir klukkutímar farið í saumaskap. Hinar dömurnar og herrann eru hvert öðru flinkari með nálina og ýmsir skemmtilegir búningar hafa litið dagsins ljós, einhleypar köngulær, kynþokkafullar múmíur og kabarett drottningar. Ég get lofað fleiri skemmtilegum búningum og atriðum á jólasýningunni okkar sem verður þann 28. desember.Hvað viltu segja um búninginn sem þú ert í á myndinni? Búningurinn er kabarettbúningur með smá virðingarvotti til Mardi Gras hefðarinnar sem til dæmis er mjög áberandi í New Orleans kringum hrekkjavöku og kjötkveðjuhátíðina. Kabarettinn og Mardi Gras eru að mörgu leyti tengd og þess vegna finnst mér passa vel að leiða þessi áhrif saman. Andlitsmálningin er svokölluð sykurkúpumálning eða „sugar skull“ en aldagömul hefð er að setja sykurkúpur á leiði ástvina á Allra sálna messu 1. nóvember og hjátrúin gerir ráð fyrir að hinir látnu rísi upp til að borða kræsingarnar.Hvernig verður svo aðalbúningurinn þinn núna? Þetta árið hef ég verið aðeins of upptekin og því verður búningurinn minn frekar einfaldur, blá hárkolla, hvítur sloppur og viskípeli, semsagt ‘Rick Sanchez’ úr hinni vinsælu teiknimyndaseríu „Rick and Morty“. Sumir myndu kannski segja að það sé bannað að fara í búning sem er ekki til þess gerður að vekja upp ótta hjá fólki, en ég hef heyrt að sumum finnist þessir sjónvarpsþættir ‘hræðilega’ leiðinlegir og því held ég að þetta sleppi hjá mér í ár.
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira