Erlent

Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði?

Þórdís Valsdóttir skrifar
Verðlaunin í flokki efnisfræði eru önnur Nóbelsverðlaunin sem afhent eru í vikunni.
Verðlaunin í flokki efnisfræði eru önnur Nóbelsverðlaunin sem afhent eru í vikunni. Vísir/getty
Sænska Nóbelsnefndin mun tilkynna hver eða hverjir hljóta Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í dag. Sýnt verður beint frá fréttamannafundinum sem fer fram í Stokkhólmi.

Útsendingin hefst klukkan 9:45 á íslenskum tíma. Hægt er að fylgjast með útsendingunni að neðan.

Eðlisfræðingarnir David Thouless, Duncan Haldane og Michael Kosterlitz hlutu verðlaunin á síðasta ári fyrir rannsóknir sínar á sviði kennilegra þéttiefnisfræði.

Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði hafa verið veitt frá árinu 1901 og hafa 204 vísindamenn hlotið verðlaunin.

Nóbelsvikan er rétt að byrja

Í gær hlutu bandarísku vísindamennirnir Jeffrey C. Hall, Michael Robash og Michael W. Young Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á gangverki sameinda sem stjórna líkamsklukku manna. 

Á morgun verða Nóbelsverðlaunin í efnafræði afhent. Hægt verður að fylgjast með fréttamannafundinum í beinni útsendingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×