Erlent

Bein útsending: Tilkynnt um hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans

Þórdís Valsdóttir skrifar
Hagfræðiverðlaunin hafa hafa verið veitt frá því 1969 og er almennt talað um verðlaunin sem hluta af Nóbelsverðlaununum.
Hagfræðiverðlaunin hafa hafa verið veitt frá því 1969 og er almennt talað um verðlaunin sem hluta af Nóbelsverðlaununum. Vísir/getty
Konunglega sænska vísindaakademían tilkynnir innan skamms hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nóbel í ár.

Verðlaunin teljast strangt til tekið ekki til Nóbelsverðlauna enda eru verðlaunin ekki komin frá Alfred Nobel sjálfum. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1969 og er almennt talað um þau sem hluta af Nóbelsverðlaununum.



Bandaríkjamennirnir Oliver Hart og Finninn Bengt Holmström hlutu verðlaunin í fyrra fyrir kenningar sínar um samninga og samningagerð.



Fréttamannafundurinn hefst klukkan 9:45 og hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér að neðan.



Í síðustu viku voru veitt Nóbelsverðlaun í flokki lífeðlis- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlaun Nóbels.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×