Fótbolti

Ragnar: Mikill léttir eftir klúðrið síðast

Raggi kampakátur.
Raggi kampakátur. vísir/eyþór
Ragnar Sigurðsson, miðvörður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, segir að framundan séu tveir úrslitaleikir eftir 2-0 sigur á Úkraínu í undankeppni HM á Laugardalsvelli í kvöld.

„Þetta var mikill léttir fyrir okkur eftir klúðrið hjá okkur síðast. Við gætum ekki verið sáttari,” sagði miðvörðurinn öflugi í samtali við 365 miðla í leikslok.

„Við vörðumst vel og sem lið, eins og vanalega. Sverrir spilaði í staðinn fyrir Kára í dag og allir hvað Sverrir getur,” sagði Ragnar aðspurður um það hvernig var að spila með Sverri Inga Ingasyni í stað Kára.

„Leikáætlun okkar gekk 100 prósent upp. Við áttum rosalegan góðan fund með Frey (innsk. blm. Alexanderssyni, leikgreinanda og landsliðsþjálfara kvenna) sem kom með marga mjög góða punkta sem við unnum með. Við unnum þetta saman og fylgdum okkar leiðbeiningum. Það skilaði okkur sigri.”

Ísland tapaði fyrir Finnlandi á laugardag eins og kunnugt er, en tapið var nokkuð óvænt. Ragnar segir að það hafi ekki verið neitt mál að rífa sig upp úr þeirri lægð.

„Það er ekkert mál, en það kemur engu að síður aukinn pressa. Við töpuðum stigum og við urðum að fá þessi stig. Ef við hefðum unnið síðast þá hefði það kannski ekki verið alveg jafn mikilvægt í dag, en það er aldrei erfitt að peppa sig upp í þessa leiki.”

Laugardalsvöllur er orðinn að alvöru vígi, en Ísland hefur ekki tapað þar síðan 2013. Ragnar segir að það sé klárlega munur að spila heima og að heiman.

„Það er munur. Við erum fleiri hér en á útileikjunum og maður finnur fyrir því. Maður finnur líka fyrir því að maður er á heimavelli og það er alltaf best að vera á heimavelli,” sagði Ragnar sem spáði svo í spilin fyrir í síðustu tvær umferðirnar. Ísland á eftir að spila við Tyrki úti og Kósóvó heima:

„Það er skyldusigur í næsta leik, en hann verður erfiður. Þrátt fyrir að við höfum unnið Tyrkina heima þá er miklu erfiðara að spila við þá úti. Þetta verða bara tveir úrslitaleikir,” sagði Ragnar að lokum.


Tengdar fréttir

Emil í banni gegn Tyrkjum

Emil Hallfreðsson verður í leikbanni þegar Ísland sækir Tyrkland heim í undankeppni HM 6. október næstkomandi.

Twitter: VIP-liðið missti af markinu

Ísland karlalandsliðið í knattspyrnu leiðir 1-0 gegn Úkraínu í undankeppni HM í knattspyrnu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði markið eftir fyrirgjöf Emils Hallfreðssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×