Rúmar 600 milljónir greiddar í göngin á fyrri helming ársins Sæunn Gísladóttir skrifar 30. ágúst 2017 14:59 Hagnaður Spalar ehf, sem rekur Hvalfjarðargöngin, nam eftir skatta 307,5 milljónum króna á fyrri helming ársins og jókst um rúmar 60 milljónir milli ára. Vísir/Pjetur
Hagnaður Spalar ehf, sem rekur Hvalfjarðargöngin, nam eftir skatta 307,5 milljónum króna á fyrri helming ársins og jókst um rúmar 60 milljónir milli ára. Fram kemur í tilkynningu að hagnaður Spalar eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2017 til 30. júní 2017 nam 199,4 milljónum króna. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 171,4 milljónum króna. Veggjald nam 686,7 milljónum króna fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 625,3 milljónir króna árið áður sem er 9,83 prósenta hækkun. Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 225 milljónum króna og hækkar um rúmar 7 milljónir króna frá árinu áður. Helstu breytingar eru vegna aukins launakostnaðar. Skuldir Spalar ehf hækka úr 2.053 milljónum króna þann 31. desember 2016 í 2.157 milljónir króna þann 30. júní 2017. Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur minni en áætlanir fyrir fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Gert sé ráð fyrir að það sama gildi fyrir árið í heild.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Vinnur við að bjarga okkur frá því að drukkna í eigin kúk Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira