Irving til Boston í skiptum fyrir Thomas Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. ágúst 2017 08:00 Kyrie Irving er farinn frá Cleveland. Vísir/Getty
Ein stærstu félagaskipti sumarsins í NBA-deildinni áttu sér stað í nótt þegar að Kyrie Irving var sendur til Boston Celtics en Cleveland Cavaliers fá meðal annars Isiah Thomas í skiptum fyrir hann. Irving óskaði eftir því að hann fengi að fara frá Cleveland í síðasta mánuði en samkvæmt heimildum ESPN vildi hann komast undan skugga LeBron James og vera í stærra hlutverki í nýju liði. Boston lét þó meira af hendi en aðeins Thomas en framherjinn Joe Crowder fer einnig til Cleveland, sem og miðherjinn Ante Zizic. Þá fær Cleveland fyrsta valrétt Brooklyn Nets á næsta ári en Boston var áður búið að tryggja sér. „Þetta hefur verið rússibanareið fyrir okkur síðustu daga. Sérstaklega að láta þá Isiaha og Jae frá okkur, en þeir hafa verið svo stór hluti af okkar liði síðustu árin og leiðtogar inni á vellinum. Þetta er afar erfiður dagur en um leið afar spennandi að fá einn besta sóknarmann deildarinnar í liðið.“ Irving á nú þrjú ár eftir af samningi sínum en hann getur sagt honum upp fyrir lokaárið sitt. Hann er 25 ára, þremur árum yngri en Thomas sem hefur slegið í gegn hjá Boston síðustu árin. Þess má geta að Boston og Cleveland mætast á fyrsta degi nýs tímabils í NBA-deildinni, þann 17. október.
NBA Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Sjá meira