Menntaðir Evrópubúar flýja Bretland Ingvar Þór Björnsson skrifar 27. ágúst 2017 10:31 Því hærri tekjur sem einstaklingur er með því meiri líkur eru á að hann flytji samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Vísir/EPA
Tæplega milljón starfsmenn með sérfræðikunnáttu sem starfa í Bretlandi en eru frá einhverju af Evrópusambandsríkjunum sjá ekki fyrir sér framtíð í Bretlandi. Þetta eru niðurstöður úr viðamikilli könnun KPMG sem gerð var meðal slíkra starfsmanna. The Guardian greinir frá. Könnunin sýnir jafnframt að rúmlega helmingur einstaklinga með doktorsgráðu og tæplega helmingur þeirra sem eru með menntun á meistaragráðustigi hyggjast flytja eða eru alvarlega að íhuga það. Um 3,1% af starfsmönnum á breskum vinnumarkaði, eða um milljón manns, sjá því ekki fyrir sér framtíð í landinu. Helsta ástæðan sem þessi hópur gaf fyrir því var að þau litu svo á að þau væru ekki lengur velkomin og ekki metin að verðleikum. Þá taldi stór hluti þessa hóps Bretland vera orðið óaðlaðandi land. Því hærri tekjur sem einstaklingur er með því meiri líkur eru á að hann flytji samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.Sjálfstæðu, kröfuhörðu, menntuðu og ungu starfsmennirnir líklegastir til flytja frá BretlandiNiðurstöður könnunarinnar staðfestir því yfirvofandi spekileka og gefur til kynna að mikil sérfræðikunnátta muni flytjast úr landi. Karen Biggs, sem hefur stjórnað könnuninni hjá KPMG, segir að þetta muni koma einna verst niður á störfum sem tengjast upplýsingatækni en um 53% starfsmanna á því sviði segjast vera annað hvort að íhuga að flytja eða vera búnir að ákveða að gera það. Karen Biggs segir jafnframt að stjórnendur fyrirtækja þurfi að leggja sig alla fram við að halda í starfsfólk frá Evrópusambandsríkjunum og býst við því að samkeppnin um starfsfólk muni koma til með að aukast mikið á næstu árum.KPMG segir að þeir sem líklegastir eru til að flytja frá Bretlandi séu sjálfstæðir, kröfuharðir, menntaðir og ungir starfsmenn. Á þetta því að koma illa niður á fyrirtækjum sem treysta á ungt menntað fólk.Fyrir rúmlega viku var sagt frá því að mun færri stúdentar frá Evrópusambandsríkjunum sóttu um nám í Bretlandi en vonast var til. Lýstu margir skólastjórnendur yfir áhyggjum sínum með þróun mála í kjölfarið. KPMG könnunin verður birt í heild sinni í vikunni.
Mest lesið Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira