Tvö kynferðisbrot tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi Atli Ísleifsson skrifar 7. ágúst 2017 21:54 Alls voru 252 mál bókuð í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi, þar af fimmtán minniháttar umferðaróhöpp. vísir/eyþór
Tvö kynferðisbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi um helgina. Þá voru þrjár líkamsárásir tilkynntar og kærðar til lögreglu í sama umdæmi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurlandi þar sem segir að verslunarmannahelgin hafi verið erilsöm þar sem gríðarlegur fjöldi fólks hafi sótt Suðurlandið heim. Alls hafi 252 mál verið bókuð í dagbók lögreglu, þar af fimmtán minniháttar umferðaróhöpp, en lítil slys urðu á fólki. 28 ökumenn voru stöðvaðir undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og 35 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. „Töluvert mikill mannfjöldi safnaðist saman á tjaldstæðinu á Flúðum á fjölskylduskemmtun sem þar fór fram. Mikið ónæði varð á unglingatjaldstæðinu þar og þurfti lögregla margoft að hafa afskipti af ungmennum þar. Föstudags- og laugardagskvöld voru erilsöm og þung í verkefnum fyrir lögregluna þar sem mikil ölvun var á svæðinu, en sunnudagskvöldið var rólegt þar sem stór hluti unga fólksins hafið farið heim á sunnudeginum. Herjólfur hóf svo siglingar um kl. 02 aðfaranótt mánudags og siglir sleitulaust milli eyja og Landeyjahafnar fram til kl 23 í kvöld, einnig hefur Akranesið og aðrir smærri bátar flutt fólk milli lands og eyja í allan dag. Flutningurinn gekk vel og komu á annað þúsund farþegar og nýttu sér þjónustu lögreglunnar um að fá að blása í áfengismæli áður en akstur hófst. Þrátt fyrir það stöðvaði lögreglan 17 ökumenn, sem voru að koma frá Landeyjahöfn, fyrir ölvun við akstur. Lögreglan er almennt ánægð með helgina, sem gekk vonum framar, þrátt fyrir mikinn eril, fjölda mála og fjölda fólks í umdæminu,“ segir í færslunni sem lesa má í heild sinni að neðan.
Tengdar fréttir Tilkynnt um tvö kynferðisbrot í Eyjum Í Facebook-færslu lögreglunnar segir að málin séu í rannsókn og að aðilar hafi fengið réttarlæknisfræðilega skoðun 7. ágúst 2017 15:58 Ástandið á Flúðum unga fólkinu að kenna Stjórnarmaður í félagi um tjaldsvæðið segir ungt fólk halda til á öðrum hluta tjaldsvæðisins á Flúðum. Þar hafi því miður komið upp leiðinleg mál nú yfir helgina. 6. ágúst 2017 20:38 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira
Tilkynnt um tvö kynferðisbrot í Eyjum Í Facebook-færslu lögreglunnar segir að málin séu í rannsókn og að aðilar hafi fengið réttarlæknisfræðilega skoðun 7. ágúst 2017 15:58
Ástandið á Flúðum unga fólkinu að kenna Stjórnarmaður í félagi um tjaldsvæðið segir ungt fólk halda til á öðrum hluta tjaldsvæðisins á Flúðum. Þar hafi því miður komið upp leiðinleg mál nú yfir helgina. 6. ágúst 2017 20:38