Sport

Sjáðu innslag úr bardaga Sunnu í nótt | Myndband

Sunna Rannveig Davíðsdóttir, bardagakappi úr Mjölni, vann í nótt sinn þriðja bardaga í röð í Invicta-bardagadeildinni er henni var dæmdur sigur gegn Kelly D’Angelo í Kansas í Bandaríkjunum.

Var þetta einn besti bardagi Sunnu til þessa sem hefur vaxið gríðarlega sem bardagakappi frá fyrsta bardaga sínum fyrir tæplega ári og hefur unnið alla þrjá til þessa.

Fyrsta lotan var nokkuð jöfn, Sunna stýrði umferðinni en fékk blóðnasir frá höggum Kelly en í annarri lotu tók hún stjórn. Náði hún fellu snemma lotunnar og hélt henni í gólfinu alla lotuna með góðum höggum.

Þriðja lotan var líkari þeirri fyrstu, Sunna og Kelly skiptust á höggum en þegar stutt var eftir af lotunni náði Sunna fellu sem innsiglaði lotuna.

Allir dómararnir voru sammála og var það því einróma ákvörðun um að Sunna hefði unnið bardagann. Var þetta fyrsta tap Kelly á bardagaferlinum en hún var fram að bardaganum ósigruð í hnefaleikum og MMA.

Myndband frá bardaganum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×