Vakta miðborg Cardiff með sérstökum myndavélum vegna úrslitaleiksins Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2017 11:15 Hámarksviðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir eftir hryðjuverkaárásina í Manchester fyrir tæpum tveimur vikum. Vísir/afp
Yfirvöld í Cardiff í Wales hafa gripið til fjölda öryggisráðstafana í tengslum við úrslitaleik Meistaradeildar karla milli Real Madrid og Juventus sem fram fer í borginni í kvöld. Hámarksviðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir eftir hryðjuverkaárásina í Manchester fyrir tæpum tveimur vikum. Um 340 þúsund manns búa í borginni og eiga borgaryfirvöld von á 170 þúsund gestum til borgarinnar vegna leiksins. BBC greinir frá því að fjölda gatna í miðborginni verði lokað og hefur fólk verið hvatt til að skilja bílinn eftir heima. Sömuleiðis hefur fólk verið hvatt til að sleppa því að nýta sér almenningssamgöngukerfi borgarinnar nema nauðsyn þyki til. Um tvö þúsund lögreglumenn verða á ferli í miðborg Cardiff og segir Wales Online frá því að um sé að ræða umfangsmestu öryggisaðgerðir í tengslum við einstakan íþróttaviðburð í sögu Bretlands. Lögregla hefur komið upp sérstökum myndavélum víðs vegar um miðborgina sem geta greint andlit fólks úr gagnagrunnum lögreglu. Sömuleiðis verður þakinu á Millenium-leikvanginum lokað af ótta við mögulegar drónaárásir. Öryggisgæsla við inngang verður sérstaklega ströng þar sem bannað verður að fara inn með bakpoka eða handtöskur.
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Innlent Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Innlent Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Innlent Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins