Niinistö sækist eftir endurkjöri Atli Ísleifsson skrifar 29. maí 2017 12:16 Sauli Niinistö tók við forsetaembættinu í Finnlandi árið 2012. Vísir/AFP
Sauli Niinistö Finnlandsforseti hefur tilkynnt að hann sækist eftir endurkjöri í forsetakosningunum sem fram fara í Finnlandi í lok janúar á næsta ári. Niinistö hyggst þó ekki bjóða sig aftur fram sem fulltrúi Þjóðarbandalagsins, en Niinistö sat áður á þingi fyrir flokkinn. Hann hyggst þess í stað safna þeirra undirskrifta sem þarf til að bjóða sig fram í gegnum sérstakt kosningafélag (f. valitsijayhdistys, s. valmansförening). Þrír stjórnmálaflokkar hafa þegar tilkynnt um forsetaframbjóðendur sína. Þingmaðurinn Matti Vanhanen verður frambjóðandi Miðflokks Juha Sipilä forsætisráðherra. Þá verður þingmaðurinn Pekka Haavisto frambjóðandi Græningja og Evrópuþingmaðurinn Merja Kyllönen frambjóðandi Vinstrisambandsins. Fyrri umferð forsetakosninganna fer fram í lok janúar á næsta ári. Nái enginn frambjóðandi hreinum meirihluta verður haldin önnur umferð tveimur vikum síðar. Niinistö tók við forsetaembættinu í Finnlandi árið 2012. Hann hafði áður gegnt embætti fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra og forseta finnska þingsins.
Finnland Norðurlönd Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum Sjá meira