Innlent

Ólafur segir baksamninga ekki snerta sölu ríkisins á Búnaðarbankanum

Heimir Már Pétursson skrifar
Ólafur Ólafsson fjárfestir leggur ofuráherslu á að ekki hafi verið skilyrði af hálfu stjórnvalda að erlendir fjárfestar kæmu að kaupunum á Búnaðarbankanum.

Hann sagði fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í dag að 70 milljarða hagnaður sem orðið hafi til vegna viðskiptanna hafi allur tapast og sjálfur hafi hann ekki átt þátt í neinum baksamningum vegna kaupanna á Búnaðarbankanum.

Ólafur Ólafsson kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að eigin ósk í dag til að koma á framfæri athugasemdum við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis á einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003. En rannsóknarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að hann hafi hagnast um milljarða króna með baksamningum við þýska bankann Hauck & Aufhauser og með aðkomu Social General bankans í Frakklandi.

Í raun hafi Ólafur Ólafsson leikið lykilhlutverk í flóknum blekkingum þar sem því hafi verið haldið fram opinberlega að verið væri að selja S-hópnum svo kallaða og þýska bankanum Búnaðarbankann. En með flóknum baksamningum hafi aflandsfélög í eigu Ólafs Ólafssonar og að öllum líkindum Kaupþings í raun og veru verið á bak við kaupin, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Ólafur birti í dag 50 mínútna sjónvarpsávarp á vefnum þar sem hann leggur megináherslu á að aðkoma erlends banka eða fjárfesta að kaupunum á Búnaðarbankanum hafi ekki verið skilyrði að hálfu stjórnvalda og einkavæðingarnefndar á sínum tíma.

S-hópurinn hafi boðið hæsta verðið og af öllum aðilum verið metinn með besta tilboðið. Þess vegna skipti samningar sem hann sagði Kaupþing hafa gert við þýska bankann engu máli, þar sem ríkið hafi fengið að fullu greitt fyrir bankann.

Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gekk hvað harðast fram gegn Ólafi.Vísir/Eyþór

Vilhjálmur sagði Ólaf ljúga

Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og sem fyrstur manna lýsti miklum efasemdum um þessi viðskipti dró þetta í efa.

„Fyrst að engin skilyrði voru sett, hvers vegna í ósköpunum ertu að setja upp þessa löngu fléttu með lygi og blekkingum fyrst það voru engin skilyrði sett í þessu máli,“ spurði Vilhjálmur.

Sjá einnig: Ólafur Ólafsson birtir tæplega klukkutíma myndband um söluferli Búnaðarbankans

Hann afhenti síðan Ólafi afrit af fréttatilkynningu frá kaupendum Búnaðarbankans á sínum tíma þar sem því hafi verið sérstaklega fagnað af þeirra hálfu að erlendur aðili kæmi að kaupum bankans.

Fram hefur komið eð þýski bankinn var fríaður allir ábyrgð á eign sinni á Eglu í stórum hluta í eigu Ólafs, sem síðan átti stóran hlut í Búnaðarbankanum og fékk aðeins 1 milljón evra í þóknun fyrir aðkomu sína að kaupunum. En 111 milljónir evra fóru síðar til kaupenda Búnaðarbankans sem hagnaður vegna kaupanna.

Ólafur sagði fátt um eigin baksamninga

Í þinni samantekt kemur þú inn á samning sem kallaður hefur verið baksamningur Kaupþings við þýska bankann. En þú minnist hvergi í þínu 50 mínútna sjónvarpsávarpi á mögulega baksamninga þína við bankann?

„Ég fór sérstaklega inn á það í mínu ávarpi að samningar bankanna á milli var ekki atriði í sölunni. Það kom ekki að ríkinu. Ríkið fékk allt sitt greitt. Það var staðið við allar skuldbindingar og það skipti ekki máli gagnvart ríkinu hvernig Hauck & Aufhauser samdi við kaupþing,“ sagði Ólafur í viðtali við fréttastofu að loknum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í dag.

En samningar þínir í þessum málum, persónulega, um hvernig átti að skipta þessum hagnaði?

„Það hafði ekkert með ríkið að gera.“

Nei, það hafði með þig að gera, fékkst þú ekki einhver hagnað út úr því?

„Jú, en það hafði ekkert með ríkið að gera,“ sagði Ólafur.

Sjálfur hafi hann ekki gert neina baksamninga við þýska bankann.

En hagnaður sem þú fékkst persónulega út úr öllum þessum viðskiptum þegar upp var staðið. Þá er ég að tala um fyrir hrun, hvað voru það miklir peningar sem þú fékkst persónulega?

„Af því sem ég fékk af öllum fjárfestingum í Eglu,í beinni og óbeinni fjárfestingu í Búnaðarbankanum og síðar Kaupþingi, þá tapaði ég miklu meira en ég græddi. Og ég bauð fram á það hér áðan að senda yfirlit, sem ég mun gera, og ég skal sýna þér það.“

Já, það er náttúrlega með hruninu. En áður en hrunið kom til á þessum árum 2004 til 2005 og 2006, hvað ert þú þá að fá mikið út úr þessum viðskiptum?

„2007 þegar hæst lætur þá á ég reikningsfærða eign upp á nettó 70 milljarða,“ sagði Ólafur Ólafsson.

Fyrir nefndinni sagði hann daginn í dag og framtíðina skipta mestu máli en ekki daginn í gær. Það sem hægt væri að læra af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis væri að til væru ýtarlegar reglur um kaup ríkisins á eignum til að tryggja að ekki væri um vina og frændhygli að ræða, en engar slíkar reglur væru til um sölu ríkisins á eignum. Enda hefði verið tekist á um þær áratugum saman og það væri gert enn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×