Svala og Einar ræddu við líbanska útvarpsstöð um bílslysið 2008 Atli Ísleifsson skrifar 7. maí 2017 12:18 Svala og Einar þurftu að dvelja á sjúkrahúsi í lengri tíma eftir slysið.
Svala Björgvinsdóttir og eiginmaður hennar Einar Egilsson rifjuðu upp bílslysið sem þau, ásamt fleirum, lentu í á Reykjanesbraut árið 2008 í samtali við Radio One Lebanon úti í Kænugarði þar sem Eurovision-keppnin fer nú fram. Viðtalið var birt á Facebook-síðu útvarpsstöðvarinnar og deildi Svala því fyrr í dag. Meðlimir hljómsveitarinnar Steed Lord, Svala söngkona og bræðurnir Einar, Erling og Eðvarð Egilssynir ásamt föður þeirra, Agli Eðvarðssyni lentu í hörðum árekstri við Vogaafleggjara á Reykjanesbraut þann 9. apríl 2008. Einar segir í viðtalinu að þegar hann hafi litið til Svölu eftir slysið hafi litið út sem að hún væri látin. Hún hafi þá verið meðvitundarlaus, en vaknað í sjúkrabílnum á leiðinni til Reykjavíkur. Segja þau svo frá því að Einar hafi um tíma verið í öndunarvél, og þurft að dvelja á sjúkrahúsi í fjóra mánuði. Þau segja að reynslan hafi einnig verið jákvæð að því leyti að þau hafi breytt viðhorfi sínu og taki nú engu sem gefnu. Sjá má viðtalið að neðan.Fréttastofa 365 verður með ítarlega umfjöllun frá Eurovision í Kænugarði næstu daga. Fréttamennirnir Stefán Árni Pálsson og Benedikt Bóas Hinriksson verða með umfjöllun hér á Vísi, Stöð 2, Fréttablaðinu og á Bylgjunni á hverjum degi í gegnum alla keppnina. Þá verður sérstakur vefþáttur á Vísi alla dagana og hefur sá þáttur fengið nafnið Júrógarðurinn. Hægt verður að fylgjast með ævintýrum Stefáns og Benedikts í Kænugarði á Twitter-reikningi Lífsins og á Snapchat-reikningi 365 sem heitir einfaldlega Snap-365. Við minnum líka lesendur á að fylgjast með Facebook-síðu Lífsins, Facebook-síðu Vísis og Twitter-reikningi Vísis.
Tengdar fréttir Júrógarðurinn: Fengu sjálfstraust við að hitta Svölu Júrógarðurinn er nýr vefþáttur sem verður á Vísi næstu daga og er umfjöllunarefnið aðeins Eurovision-keppnin í Úkraínu. 7. maí 2017 11:00 Mest lesið „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Lífið Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Tónlist Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Lífið Fleiri fréttir Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Netó skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Sjá meira
Júrógarðurinn: Fengu sjálfstraust við að hitta Svölu Júrógarðurinn er nýr vefþáttur sem verður á Vísi næstu daga og er umfjöllunarefnið aðeins Eurovision-keppnin í Úkraínu. 7. maí 2017 11:00