Aprílspá Siggu Kling – Fiskarnir: Þú ert á miklu orkusvæði og margt að gerast í kringum þig 7. apríl 2017 09:00
Elsku Fiskurinn minn, þú ert eins spennandi manneskja og land sem hefur verið ókannað, það veit enginn alveg hver þú ert svo þú kemur alltaf á óvart og átt það ekki til að vera leiðigjarn, það er svo einfalt. Í stöðunni í lífinu er allt gott, þú ert á miklu orkusvæði og margt að gerast í kringum þig. Þú hefur það í hendi þér að vera sigurvegari í leiknum sem er fram undan, þó þú sért alveg SNILLINGUR í að finna eitthvað til að drepa þig úr áhyggjum. Það er mikið að gerast í kringum fjölskylduna og vinina, sem veldur bæði sársauka en gefur líka gleði. Þú ert að fara inn í tímabil þar sem þú færð lausn og sérð betur að svarið við áhyggjunum er að hætta að velta öllu svona mikið fyrir sér, að hætta að vera bjargvættur alls, að kjarna sig inn í friðinn og ná í núllpunktinn. Dásamlegur fiskur sem ég þekki fékk allt upp í hendurnar sem hún vildi vegna þess að hún trúði því að hún skapaði sér framtíðina. Það eina sem henni gekk erfiðlega var að eignast peninga, hún tengdi alltaf peninga við skuldir svo þeir hurfu jafnharðan í þær, að sjálfsögðu. Fyrir um það bil ári varð hún afskaplega pirruð við tilveruna út af þessu, og hún sagði djöfulsins rugl í henni Siggu vinkonu, að maður fái allt sem maður óskar sér ef maður trúir. Hún bjó á erfiðu svæði þar sem uxu engin tré; á Vatnsleysunni. Hún sagði hátt og skýrt að hún gæti alveg eins óskað sér að hún fengi risastór tré í kringum sig á Vatnsleysuna. Daginn eftir var hringt í hana og hún spurð hvort hana vantaði ekki tré, því það var verið að taka upp tré í Reykjavík. Hún bjóst við að þetta væru einhverjar ræfilslegar hríslur, en daginn eftir kom flutningabíll með stór tré og innan nokkurra daga var búið að setja þau upp allt í kringum hana. Hún tengdi ekki áhyggjur við tré, en tengdi áhyggjur við peninga. Og þú, elsku andlegi fiskurinn minn, skalt skoða þessa sögu því hún er send til þín. Þú ert á blessuðum krossgötum í lífi þínu og það er sama hvaða veg þú velur, það eru engin mistök fólgin í því, heldur bara sú leið sem þú ákveður að hamingjunni. Mottó – Það er allt að bjóðast þér, þú færð meira en augað sérFrægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira