Sameinast gegn ofbeldi Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 24. mars 2017 16:47 Fjórir ráðherrar undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Mynd/Velferðarráðuneytið
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra, Sigríður Á Anderssen, dómsmálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra undirrituðu í dag samstarfsyfirlýsingu um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Yfirlýsingin byggir á samstarfsyfirlýsingu frá árinu 2014 sem fyrrum ráðherrar þessara málaflokka undirrituðu. Í frétt á vef velferðarráðuneytisins segir að ráðherrarnir séu sammála um að halda verkefninu áfram með áherslu á samráð á landsvísu milli félagsþjónustu, barnaverndaryfirvalda, mennta- og heilbrigðiskerfis, lögreglu og ákæruvalds, í því skyni að efla aðgerðir gegn ofbeldi í íslensku samfélagi segir í samstarfsyfirlýsingunni. „Samstarfinu er einkum ætlað að ná til ofbeldis gegn börnum, ofbeldis í nánum samböndum, kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis og ofbeldis gagnvart fötluðu fólki og öðrum berskjölduðum hópum. Einnig telst hatursfull orðræða, sem hvetur til ofbeldis eða annarrar refsiverðrar háttsemi sem er lítillækkandi eða ógnandi í garð einstaklinga eða hópa fólks, til ofbeldis sem yfirlýsing þessi tekur til,” segir í yfirlýsingunni. „Lögð verður áhersla á að bæta verklag og samvinnu allra sem geta tekið þátt í að draga úr ofbeldi meðal annars með því að efla forvarnir og fræðslu meðal barna, ungmenna og fólks sem vinnur með þeim, hjá réttarvörslukerfinu og meðal almennings; að efla hæfni lögreglu við uppljóstrun ofbeldisbrota og auka þjálfun og menntun innan réttarvörslukerfisins til þess að taka á ofbeldismálum; og að efla velferðarþjónustuna til að veita þolendum uppbyggilegan stuðning og vernd.“
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Sjá meira