Millinafnið Mordal í náð en eiginnafnið Hel ekki Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. janúar 2017 20:20 Nöfnin Adrian og Eyva voru samþykkt en ekki Hel og Ónarr. Vísir/Getty
Mannanafnanefnd hefur samþykkt tvö eiginnöfn og eitt millinafn, en um er að ræða eiginnöfnin Adrian og Eyva, auk millinafnsins Mordal. Nefndin hafnaði hins vegar tveimur eiginnöfnum, Hel og Ónarr, en hún felldi úrskurð í fimm málum þann 6. janúar síðastliðinn. Þrjú skilyrði þarf til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Nafnið Adrian, í karlkyni þótti uppfylla þessi skilyrði, en hefð hefur myndast fyrir nafninu og bera 35 karlar á Íslandi nafnið. Þá tekur nafnið Eyva, í kvenkyni íslenskri beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði í lögum um mannanöfn. Mordal, sem millinafn er dregið af íslenskum orðstofni og uppfyllir skilyrði mannanafnanefndar sem millinafn. Í úrskurði um nafnið Hel, í kvenkyni, segir að nafnið uppfylli ekki viðmið mannanafnalaga um að nafn skuli ekki vera nafnbera til ama og er ítarlega greint frá ástæðum þess í úrskurðinum. Að sama skapi var nafnið Ónarr, í karlkyni, hafnað þar sem ekki þótti sýnt fram á að nafnið væri ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki hefur skapast hefð fyrir nafninu á Íslandi, þar sem enginn ber, eða hefur borið nafnið samkvæmt þjóðskrá.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Notuðu piparúða á mótmælendur Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Þakklát og telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið Sjá meira