Tónlist

Árslisti útvarpsþáttarins Kronik 2016

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Þeir Róbert Aron Magnússon og Benedikt Freyr Jónsson hafa lifað og hrærst í rappheiminum í fjöldamörg ár.
Þeir Róbert Aron Magnússon og Benedikt Freyr Jónsson hafa lifað og hrærst í rappheiminum í fjöldamörg ár. Vísir/Ernir
Þeir Róbert Aron Magnússon og Benedikt Freyr Jónsson, eða Robbi Kronik og Benni B-Ruff eins og mæður þeirra þekkja þá, í útvarpsþættinum Kronik,­ réðust í það verkefni að velja það sem stóð upp úr á árinu 2016 í heimi hiphop-tónlistar og var af því tilefni sérstakur árslistaþáttur hjá þeim félögum á laugardaginn síðasta.

Þeir stóðu þó ekki einir í þessu verkefni heldur fengu þeir með sér nokkra álitsgjafa sem sendu inn sínar tilnefningar. Flokkarnir sem valið var í að þessu sinni voru 20 bestu lög ársins, fimm bestu plöturnar og tíu bestu íslensku rapp­lögin.

„Já, við sátum alveg rennsveittir við þetta nánast fram á nótt á föstudaginn. Þetta var gríðarlega erfitt val og allir með sínar meiningar. En þetta hafðist á endanum,“ segir Benni um hvernig gekk að vinna listann.

Útvarpsþátturinn Kronik er á dagskrá á X-inu alla laugardaga frá klukkan 17 til 19. Þátturinn hóf upphaflega göngu sína árið 1993 en lagðist síðan í dvala fyrir einum tíu árum, en sneri svo að lokum aftur á X-ið í nóvember í fyrra.

Topp 10 plötur

- Skepta - Konnichiwa

- Kanye West - The Life of pablo

- A$AS Mob - Cosytapez

- A Tribe Called Quest - We Got It from Here... Thank You 4 Your Service

- Travis Scott - Birds in the trap sing McKnight

- Anderson Paak - Malibu

- Gucci Mane - Everybody looking

- 21 Savage - Savage Mode

- Chance the rapper - The Colouring Book

- Schoolboy Q - Blank Face

Topp 20 íslenskt

1. Aron Can - Enginn Mórall

2. GKR - Tala um

3. Gísli Pálmi - Roro

4. Emmsjé Gauti - Silfurskotta

5. Herra Hnetusmjör - 203 stjórinn

6. Emmsjé Gauti - Reykjavík

7. Sturla Atlas - Mean 2 u

8. Aron Can - Grunaður

9. Tiny - Thought u knew

10. GKR - Meira

11. Alvia Islandia - Ralph Lauren

12. Cheddy Carter - Yao Ming

13. Kilo - Magnifico

14. Marteinn - Bing

15. Alexander Jarl & Aron Can - No Deal

16. Aron Can - Rúllupp

17. Geimfarar - Hvítur Galdur

18. Blaz Roca - Fýrupp

19. Shades of Reykjavík - Sólmyrkvi

20. Peter Overdrive - Beats með dýfu





Topp 25 erlent

1. Young Thug & Travis Scott feat Quavo - Pick up the phone

2. Schoolboy Q - That Part

3. Migos - Bad n Boujee

4. Kanye West - Father Stretch my hands pt 1

5. Big Sean - Bounce Back

6. Rae Sremmurd - Black Beatles

7. Ty Dolla Sign - Where

8. Skepta - Man

9. 21 Savage - No Heart

10. Rihanna - Nothing is Promised

11. Desiigner - Panda

12. Fat Joe ft French Montana - All the way up

13. Travis Scott - Goosebumps

14. Giggs - Lock doh

15. MadeinTYO - Uber everywhere

16. Future & Lil Uzi Vert - Too much sauce

17. Ab Soul - Drugs

18. Young M.A - OUUUUU

19. Desiigner - Timmy Turner

20. Chance the rapper ft 2 Chainz & Lil Wayne - Problems

21. Tory Lanez - LUV

22. P Money - Panasonic

23. Stormzy- Scary

24. Chip & Kranium -Style Dat

25. A Tribe Called Quest - We the people...





Álitsgjafar Kronik

Björn Valur Pálsson – plötusnúður og pródúsent

Egill Ásgeirsson – plötusnúður

Karítas Óðinsdóttir – plötusnúður

Ragnar Tómas Hallgrímsson – blaðamaður

Stefán Þór Hjartarson - blaðamaður


Tengdar fréttir

Alvia fór á kostum í Kronik

Útvarpsþátturinn Kronik snéri aftur til leiks 26. nóvember og þá eftir tíu ára fjarveru í útvarpi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×