23 látnir eftir miklar frosthörkur í Evrópu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. janúar 2017 22:01 Það snjóaði á Ægisif. Vísir/AFP
Minnst 23 eru látnir eftir miklar frosthörkur víðs vegar um Evrópu undanfarna tvo daga. Flóttamenn og heimilislausir eru meðal þeirra sem verst hafa orðið úti. AFP greinir frá. Tíu hafa látist í Póllandi, þar af sjö í gær en þar var allt að fjórtán stiga frost. Alls hafa 53 látist í Póllandi vegna ofkælingar frá 1. nóvember á síðasta ári. Sjö hafa látist á Ítalíu, þar af fimm heimilislausir. Töluverð snjókoma hefur verið í mið-Ítalíu undanfarna daga og voru flugvellirnir í Bari og Brindisi lokaðir vegna snjókomunnar. Í Tékklandi hafa þrír látist vegna ofkælingar. Einn fannst látinn í St. Pétursborg í Rússlandi en í Moskvu hefur hitinn mælst lægstur um -30 stig að næturlagi. Búist er við að fleiri muni verða kuldanum að bráð um helgina enda búist við áframhaldandi kuldabylgju. Einnig snjóaði mikið í Istanbúl í Tyrklandi þar sem snjódýpt mældist mest 65 sentimetrar en aflýsa þurfti fjölmörgum flugferðum vegna úrkomunnar. Í Grikklandi hafa yfirvöld flutt fjölmarga flóttamenn í betri híbýli vegna kuldans en í Grikklandi eru um 60 þúsund flóttamenn, flestir frá Sýrlandi.
Flóttamenn Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Sjá meira