Ellilífeyrisránið mikla Eggert Briem skrifar 22. febrúar 2017 07:00 Á lokaspretti síðasta þings voru samþykktar nýjar reglur um grunnlífeyrisgreiðslur. Ekki virðist mikill tími hafa farið í umræður um málið enda um nokkuð flókið mál að ræða. Allavega sagði þingmaður sem ég ræddi við að hann hefði ekki haft tíma til að skoða málið gaumgæfilega. Hins vegar lýstu margir þingmenn yfir mikilli ánægju með frumvarpið og fram kom að langflestir myndu fá hækkun á grunnlífeyri. Ef jafnan langflestir + x = allir er skoðuð munu líklega flestir álykta að lausnin sé x = fáir. Berum saman við frétt um jarðskjálfta sem varð 1500 manns að bana í 30 þús. manna þorpi. Hér má segja að langflestir hafi komist lífs af, en ef jafnan hér að framan er skoðuð aftur myndu nú fæstir segja að lausnin x= fáir sé rétt. Samhengið skiptir máli. Þegar grunnlífeyrisgreiðslum var breytt frá og með síðustu áramótum féll grunnlífeyrir alveg niður hjá þeim sem hafa 530 þús. eða meira í lífeyrissjóðstekjur. Þetta olli að meðaltali um 37 þús. kr. skerðingu á mánuði hjá tæplega 1400 grunnlífeyrisþegum eða u.þ.b. 6% tekjumissi. Áður höfðu lífeyrissjóðstekjur ekki skert grunnlífeyri. Heildarfjöldi allra grunnlífeyrisþega var tæp 28 þús. í desember 2016. Nú geta menn velt fyrir sér lausn á jöfnunni að framan í þessu tilviki. Það er huggun gegn harmi þeirra sem misstu grunnlífeyrinn, að sú fjárhæð sem sparast dugir vel fyrir góðri launahækkun þingmanna. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Á lokaspretti síðasta þings voru samþykktar nýjar reglur um grunnlífeyrisgreiðslur. Ekki virðist mikill tími hafa farið í umræður um málið enda um nokkuð flókið mál að ræða. Allavega sagði þingmaður sem ég ræddi við að hann hefði ekki haft tíma til að skoða málið gaumgæfilega. Hins vegar lýstu margir þingmenn yfir mikilli ánægju með frumvarpið og fram kom að langflestir myndu fá hækkun á grunnlífeyri. Ef jafnan langflestir + x = allir er skoðuð munu líklega flestir álykta að lausnin sé x = fáir. Berum saman við frétt um jarðskjálfta sem varð 1500 manns að bana í 30 þús. manna þorpi. Hér má segja að langflestir hafi komist lífs af, en ef jafnan hér að framan er skoðuð aftur myndu nú fæstir segja að lausnin x= fáir sé rétt. Samhengið skiptir máli. Þegar grunnlífeyrisgreiðslum var breytt frá og með síðustu áramótum féll grunnlífeyrir alveg niður hjá þeim sem hafa 530 þús. eða meira í lífeyrissjóðstekjur. Þetta olli að meðaltali um 37 þús. kr. skerðingu á mánuði hjá tæplega 1400 grunnlífeyrisþegum eða u.þ.b. 6% tekjumissi. Áður höfðu lífeyrissjóðstekjur ekki skert grunnlífeyri. Heildarfjöldi allra grunnlífeyrisþega var tæp 28 þús. í desember 2016. Nú geta menn velt fyrir sér lausn á jöfnunni að framan í þessu tilviki. Það er huggun gegn harmi þeirra sem misstu grunnlífeyrinn, að sú fjárhæð sem sparast dugir vel fyrir góðri launahækkun þingmanna. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.