Páfinn fordæmir alræðisstjórnir og hvetur til stillingar í páskaávarpi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. apríl 2017 12:08 Frans páfi, hélt ávarp sitt, frammi fyrir þúsundum manns í dag, í tilefni páska. Vísir/EPA
Frans páfi fordæmdi alræðisstjórnir sem kúga þegna sína, í sérstöku hátíðarávarpi sínu í dag, í tilefni páska. Þá hvatti hann jafnframt leiðtoga heimsins til þess að sýna stillingu og koma í veg fyrir útbreiðslu átaka, í kjölfar aukinnar spennu í Norður-Kóreu og Sýrlandi. Reuters greinir frá. Páfinn hélt ávarp sitt frammi fyrir þúsundum manns á Sánktí-Péturstorgi í Vatíkaninu og voru gífurlegar öryggisráðstafanir á torginu, þar sem tugir lögreglu- og herbíla var lagt fyrir götum í grenndinni, til að koma í veg fyrir samskonar árásir og gerðar hafa verið með vörubílum víðsvegar um Vesturlönd. Páfinn sagði „að guð gengi meðal allra þeirra sem hefðu þurft að yfirgefa heimaland sitt vegna átaka, hryðjuverkaárása, örbirgðar og alræðisstjórna.“ Hann tók ekki fram hvaða ríkisstjórnir hann ætti við. Þá sagðist páfinn vona að „guð myndi gefa leiðtogum þjóða heimsins hugrekki til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu vopnaðra átaka og stöðva útbreiðslu og sölu vopna.“ Hann fordæmdi einnig sjálfsmorðssprengjuárásina í Sýrlandi í gær, þar sem að minnsta kosti 112 manns létu lífið. Hann sagði árásina einstaklega grimmilega.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira