Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2017 19:43 LÆF hefur aðsetur í Hinu húsinu. vísir/gva
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Natan Kolbeinsson, fyrrverandi formann og gjaldkera Landssambands æskulýðsfélaga, LÆF, í skilorðsbundið 45 daga fangelsi, fyrir fjárdrátt á tímabilinu 26. október 2015 til 23. nóvember 2015. Á þeim tíma starfaði Natan í sjálfboðavinnu sem gjaldkeri LÆF og dró hann í 17 skipti að sér fé sambandsins, samtals kr. 412.080,- með millifærslum af reikningum sambandsins. Í dómi Héraðsdóms kemur fram að ákærði hafi skýlaust játað brot sín og fellur refsingin niður að tveimur árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði skilorð sitt. Stjórn LÆF kaus sér nýjan meðstjórnanda á sérstökum neyðarfundi í júlí, í fyrra, eftir að Natan sagði af sér embætti þegar grunur vaknaði um fjárdrátt af hans hálfu. Til stóð að leggja fram vantrauststillögu á Natan, sem hætti áður en til hennar kom. Natan hafði áður setið í stjórn nokkurra félaga. Hann sagði sig einnig úr stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og uppstillingarnefnd flokksins í Reykjavík, fyrir Alþingiskosningar haustið 2016. Stjórn LÆF lagði jafnframt fram siðareglur á umræddum fundi, til að fyrirbyggja að nokkuð slíkt gæti komið fyrir aftur. „Ég sé innilega eftir því sem ég gerði. Að auki óska ég nýrri stjórn velfarnaðar í starfi sínu,“ sagði Natan í samtali við Vísi, í júlí 2016.
Tengdar fréttir Sagði af sér formennsku áður en til vantrausts kom "Ég sé innilega eftir því sem ég gerði,“ segir fyrrverandi formaður LÆF en hann er grunaður um fjárdrátt í starfi sínu fyrir stjórn sambandsins. 15. júlí 2016 20:00 Formaður Landssambands æskulýðsfélaga grunaður um fjárdrátt Upphæðin sem um ræðir nemur um 400.000 krónum. 10. júlí 2016 18:09 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira
Sagði af sér formennsku áður en til vantrausts kom "Ég sé innilega eftir því sem ég gerði,“ segir fyrrverandi formaður LÆF en hann er grunaður um fjárdrátt í starfi sínu fyrir stjórn sambandsins. 15. júlí 2016 20:00
Formaður Landssambands æskulýðsfélaga grunaður um fjárdrátt Upphæðin sem um ræðir nemur um 400.000 krónum. 10. júlí 2016 18:09