Athafnamenn ólmir í Fjölnisveg Benedikt Bóas skrifar 11. september 2017 10:00 Fjölnisvegur 11 er glæsilegt hús, alls 433,4 m², 13 herbergja einbýlishús. Fasteignasalan Trausti
Í risinu er opið parktelagt rými sem nýtt er undir tómstundir. Útsýni þaðan þykir einstakt. Það er töluverður áhugi á þessu húsi og margar fyrirspurnir,“ segir Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, en hann hefur fengið Fjölnisveg 11 til sölu. Húsið er eitt þekktasta hús Reykjavíkur enda hafa margir þjóðþekktir einstaklingar hreiðrað þar um sig. Skúli Mogensen átti það áður en hann flutti til Kanada. Skúli seldi athafnamanninum Boga Pálssyni það sem seldi það til Guðmundar í Brimi sem seldi Hannesi Smárasyni húsið. Guðmundur keypti það svo aftur af þrotabúi félagsins Fjölnisvegur 9 ehf. sem átti Fjölnisveg 11. Hannes átti húsið við hliðina og tengdi þau saman. Reyndar hafa Guðmundur og Skúli tvisvar átt húsið en núverandi eigendur keyptu það af félagi Skúla.Eldhúsið er glæsilegt og þar hefur ekkert verið til sparað til að geta gert sunnudagslærið sem allra best. Mynd/Fasteignasalan TraustiKristján segir að algengur tími fyrir svona dýra eign að seljast sé ekki ýkja langur. Markaðurinn fyrir stórar og dýrar eignir sé í ágætis blóma. „Það er talsverður áhugi þessa dagana á stærri eignum. Það eru um tvær vikur síðan húsið kom til okkar í sölumeðferð og töluverður áhugi. Það gengur alveg ágætlega að selja þessar stærri eignir. Það er ágætismarkaður fyrir þær og staðan nokkuð góð. Þær fara tiltölulega hratt og örugglega,“ segir Kristján en hann er nýbúinn að ganga frá sölunni á Laugarásvegi 60 þar sem ásett verð var 110 milljónir. Sú eign var fjórar til sex vikur í sölumeðferð. „Það hefur auðvitað aðeins hægst á eins og maður hefur lesið um og má segja að markaðurinn sé að ná jafnvægi. Það er ekkert óeðlilegt að það taki viku til mánuð að selja fasteign. Það er skortur á fasteignum og allt það en fólk vill kaupa fasteignir sem eru í lagi og á góðu verði,“ segir Kristján. Einstaklega glæsilegur garður er með húsinu, með góðri aðstöðu og sérstæðum heitum pott.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Sahara Ray látin Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira