Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. maí 2017 13:30 Thom Yorke, söngvari Radiohead, hress að vanda. Vísir/Getty
Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár liðin frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fóru ekki á plötuna. Radiohead hafði í vikunni strítt aðdáendum sínum með dularfullu myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum hljómsveitarinnar. Þá hafði sveitin einnig birt skilaboð víða um heim á götum úti í anda plötunnar. Ljóst var að eitthvað mikið stæði til hjá sveitinni og á þriðjudaginn var tilkynnt hvað væri í bígerð. Viðhafnarútgáfan nefnist OKNOTOK þar sem finna má öll upprunalegu lögin af OK Computer, sem árið 2010, var valin besta plata síðustu 25 ára af tímaritinu Q. Alls fylgja einnig átta b-hliðar og þrjú áður óútgefin lög, ásamt ýmsu öðru, þar á meðal 104 blaðsíður úr dagbók Thom Yorke, söngvara hljómsveitarinnar.pic.twitter.com/dsmAGh6bkm— Radiohead (@radiohead) May 1, 2017 En hvað með lagið sem hefði gert allt vitlaust? Lögin sem ekki hafa áður verið gefin út heita I Promise, Man of War og Lift. Síðari tvö lögin hafa lengi verið í uppáhaldi heitra aðdáenda hljómsveitarinnar en þau hafa annað slagið skotið upp kollinum á tónleikum hljómsveitarinnar í gegnum tíðina. Ed O'Brien, gítarleikari hljómsveitarinnar, ræddi við BBC um hina nýju útgáfu og þar var hann meðal annars spurður út í Lift, sem var samið á sama tíma og flest hin lögin á OK Computer. Líkt og hin lögin var það spilað með reglulegum hætti á tónleikaferðalagi Radiohead með Alanis Morissette árið 1996.Þetta var mjög áhugavert lag. Áhorfendurnir, maður sá þá lifna við. Lagið var smitandi. Þetta var stórt og mikið lag, sagði O'Brien. Þegar upptökur hófust á OK Computer hafi hljómsveitin reynt að finna leið til þess að taka það upp en miðað við viðtökurnar sem lagið hafði fengið á tónleikunum var pressan einfaldlega of mikil. Hljómsveitin gafst því upp á því að finna laginu stað á OK Computer. „Ef lagið hefði verið á þessari plötu hefði það sett okkur á einhverja aðra hillu og líklega hefðum við selt mun fleiri plötur, ef okkur hefði tekist að taka það upp. Það voru allir að tala um það á þessum tíma. Ég held að við höfum á ómeðvitaðan hátt drepið lagið. Ef OK Computer hefði orðið jafn vinsæl og Jagged Little Pill, þá hefði það drepið okkur,“ sagði O'Brien ennfremur.Lagalisti viðhafnarútgáfunnar.Vísar O'Brien þar til plötu Alanis Morissette frá árinu 1995 sem varð strax gríðarlega vinsæl. Hefur hún í dag selst í 33 milljónum eintaka, samanborið við um átta milljónir eintaka OK Computer. O'Brien segir að sú útgáfa af Lift sem muni koma út þann 23. júní með viðhafnarútgáfunni sé nokkuð góð. Nú þegar eru til nokkrar útgáfur af laginu sem teknar voru upp á tónleikum sveitarinnar. Lagið, í sinni upprunalegu mynd, má heyra hér fyrir neðan en það var tekið upp á tónleikum Radiohead í Hollandi árið 1996.Sjá einnig: Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnarLagið er sem fyrr segir nokkuð vinsælt meðal harðra aðdáenda Radiohead en það hefur þá sérstöðu að vera eina lagið sem Radiohead hefur gefið út þar sem Thom Yorke ávarpar sjálfan sig í textanum. Hljómsveitin endurvakti lagið svo á tónleikaferð sinni um heiminn árið 2002 og var það þá gjörbreytt, rólegra og minna í sniðum. Heyra má báðar útgáfur hér fyrir neðan. Fyrst er það eldri útgáfan:Síðan er það útgáfan frá 2002. Dæmi hver fyrir sig.
Tónlist Tengdar fréttir Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnar Og það breytti öllu. 28. janúar 2016 10:30 Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“ Hin goðsagnakennda hljómsveit Radiohead spilaði vel og lengi í Laugardalshöll í gær. Mörg af helstu lögum hljómsveitarinnar fengu að heyrast. 18. júní 2016 10:30 Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“ Hin goðsagnakennda hljómsveit Radiohead spilaði vel og lengi í Laugardalshöll í gær. Mörg af helstu lögum hljómsveitarinnar fengu að heyrast. 18. júní 2016 10:30
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið