Robert Downey kærður fyrir kynferðisbrot á ný Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 6. júlí 2017 19:14 Lögð var fram kæra hjá lögreglu í gær gegn Robert Downey fyrir samskonar brot og hann var sakfelldur fyrir árið 2008 Vísir
Anna Katrín Snorradóttir lagði fram kæru hjá lögreglu í gær gegn Robert Downey fyrir samskonar brot og hann var sakfelldur fyrir árið 2008. Hún segir að samskipti hennar og Roberts hafi staðið yfir í um þrjú ár, frá 2001 til 2004. Hún segir það senda röng skilaboð að veita dæmdum kynferðisbrotamanni uppreist æru og lögmannsréttindi á ný. Rætt var við Önnu Katrínu í kvöldfréttum RÚV í kvöld. „Mig langaði alltaf til að koma fram, mig langaði alltaf til að skila skömminni en ég skammaðist mín ennþá of mikið og ég fékk mig ekki í það,“ segir Anna Katrín. „Ég hafði í rauninni ekkert bakland og þessi tími er allur í móðu, í rauninni öll þessi ár og tíminn á eftir er bara í móðu.. Ég varð ofboðslega dofin, þunglynd, kvíðin og mig langaði ekki til að lifa því skömmin var svo mikil.“ Robert Downey, sem áður hét Róbert Árni Hreiðarsson, hlaut lögmannsréttindi á ný þann 15. júní síðastliðinn. Robert hafði áður verið dæmdur í Hæstarétti í þriggja ára fangelsi árið 2008 fyrir kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum og hafði héraðsdómur áður einnig fallist á beiðni hans um að hann fengi lögmannsréttindin aftur.Steig fram í kjölfar kvíðakasts Anna Katrín segir að fréttir af niðurstöðu Hæstaréttar um að veita Robert lögmannsréttindi á ný hafi haft mikil áhrif á sig. „Ég fæ svakalegt kvíðakast, eitt stærsta kvíðakast sem ég hef fengið og það endar með því að ég hringi á sjúkrabíl, ég hélt ég væri að deyja. Vanlíðanin er svo mikil að ég er ekki að höndla neitt. Það er síðan upp frá því þá ákvað ég að koma fram.” Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 2007 kemur fram að Róbert hafi nýtt sér yfirburði sína til að tæla fjórar stúlkur, þrjár 15 ára og eina 14 ára gamla, með peningagreiðslum og blekkingum. Komst hann í samband við þær með blekkingum, og þóttist hann til að mynda vera 17 ára gamall táningspiltur að nafni Rikki í samskiptum við eina þeirra í gegnum netið. Þá hafi hann í 15 skipti tælt aðra stúlku, sem þá var 15 ára með peningagreiðslum og blekkingum til þess að hafa við sig kynferðismök í bifreið á ýmsum stöðum í Reykjavík.
Tengdar fréttir Faðir stúlku sem Robert Downey braut á krefst svara: „Hér er allt á skakk og skjön“ Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og faðir stúlku sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut á krefst svara við þeirri spurningu hvaða mat liggi að baki því Robert skuli hafa verið veitt uppreist æru í september síðastliðnum. 22. júní 2017 10:32 Dæmdur kynferðisbrotamaður fær lögmannsréttindi á ný Maður sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum hefur fengið lögmannsréttindi sín á ný samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. 15. júní 2017 17:33 Hefur skoðað hvort mögulegt sé að breyta frá áratuga framkvæmd á reglum um uppreist æru Dómsmálaráðherra hefur að undanförnu skoðað hvort mögulegt sé að breyta frááratuga framkvæmd á reglum um uppreist æru – um að menn fái sjálfkrafa uppreist æru uppfylli þeir skilyrði laganna. Henni finnst aðþað ekki sjálfgefið að kynferðisbrotamenn hafi lögmannsréttindi. 18. júní 2017 09:15 Mun ekki birta nöfn þeirra sem vottuðu um góða hegðun Roberts Downey Dómsmálaráðuneytið metur það svo að ekki sé heimilt að birta nöfn þeirra einstaklinga sem hafa vottað um góða hegðun einstakra umsækjenda um uppreist æru. 22. júní 2017 20:10 Forsetinn miður sín vegna máls Roberts Downey „Ég er bara eins og aðrir Íslendingar, held ég, að þegar kynferðisafbrot eru annars vegar þá vill maður helst að brotamaðurinn sé læstur inni og lykllinum hent.“ 16. júní 2017 11:18 Ein stúlknanna fjögurra segir forseta Íslands hafa brugðist henni Nína Rún Bergsdóttir er ein af fjórum stúlkum sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut kynferðislega gegn og hlaut dóm fyrir í Hæstarétti árið 2008. 16. júní 2017 00:04 „Við viljum vera siðmenntað ríki sem þýðir að við gefum mönnum annað tækifæri“ Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Roberts Downey sem í dag hlaut lögmannsréttindi á ný, gagnrýnir fjölmiðla fyrir að rifja upp þau brot sem skjólstæðingur hans var dæmdur fyrir í Hæstarétti árið 2008. Ekki er laust við að nokkurrar reiði gæti á samfélagsmiðlum vegna málsins en Jón Steinar minnir á að í íslenskum rétti sé það svo að menn fái annað tækifæri. 15. júní 2017 22:00 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Faðir stúlku sem Robert Downey braut á krefst svara: „Hér er allt á skakk og skjön“ Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri og faðir stúlku sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut á krefst svara við þeirri spurningu hvaða mat liggi að baki því Robert skuli hafa verið veitt uppreist æru í september síðastliðnum. 22. júní 2017 10:32
Dæmdur kynferðisbrotamaður fær lögmannsréttindi á ný Maður sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum hefur fengið lögmannsréttindi sín á ný samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. 15. júní 2017 17:33
Hefur skoðað hvort mögulegt sé að breyta frá áratuga framkvæmd á reglum um uppreist æru Dómsmálaráðherra hefur að undanförnu skoðað hvort mögulegt sé að breyta frááratuga framkvæmd á reglum um uppreist æru – um að menn fái sjálfkrafa uppreist æru uppfylli þeir skilyrði laganna. Henni finnst aðþað ekki sjálfgefið að kynferðisbrotamenn hafi lögmannsréttindi. 18. júní 2017 09:15
Mun ekki birta nöfn þeirra sem vottuðu um góða hegðun Roberts Downey Dómsmálaráðuneytið metur það svo að ekki sé heimilt að birta nöfn þeirra einstaklinga sem hafa vottað um góða hegðun einstakra umsækjenda um uppreist æru. 22. júní 2017 20:10
Forsetinn miður sín vegna máls Roberts Downey „Ég er bara eins og aðrir Íslendingar, held ég, að þegar kynferðisafbrot eru annars vegar þá vill maður helst að brotamaðurinn sé læstur inni og lykllinum hent.“ 16. júní 2017 11:18
Ein stúlknanna fjögurra segir forseta Íslands hafa brugðist henni Nína Rún Bergsdóttir er ein af fjórum stúlkum sem Robert Downey, áður Róbert Árni Hreiðarsson, braut kynferðislega gegn og hlaut dóm fyrir í Hæstarétti árið 2008. 16. júní 2017 00:04
„Við viljum vera siðmenntað ríki sem þýðir að við gefum mönnum annað tækifæri“ Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Roberts Downey sem í dag hlaut lögmannsréttindi á ný, gagnrýnir fjölmiðla fyrir að rifja upp þau brot sem skjólstæðingur hans var dæmdur fyrir í Hæstarétti árið 2008. Ekki er laust við að nokkurrar reiði gæti á samfélagsmiðlum vegna málsins en Jón Steinar minnir á að í íslenskum rétti sé það svo að menn fái annað tækifæri. 15. júní 2017 22:00