Aprílspá Siggu Kling – Meyjan: Það þýði ekki að kvíða því sem er ekki komið 7. apríl 2017 09:00
Elsku Meyjan mín, þú ert að fara inn í tímabil þar sem andleg velferð þín verður eitthvað svo dásamlega hressandi og djúp. Það sem einkennir þig er hjálpsemi og þú munt eyða miklu af tíma þínum á næstunni í að hugsa um aðra og gefa af þér miklu meira en þú kannski getur, enda var Hrói höttur í meyjunni, en ég er svo sem ekki að benda á það að þið eigið að stela frá öðrum, en allavega hjálpsemina. Fólk mun líta þig allt öðrum og betri augum en það hefur gert, það er eins og ólíklegasta fólk skilji þig betur og sýni þér virkilega hvers mikils virði því finnst þú vera. Þetta er kafli í lífinu þínu þar sem þú hættir að spá svona langt fram í tímann. Það er eins og það komi til þín kraftaverk – það þýði ekki að kvíða því sem er ekki komið, og þess vegna ert þú að sigrast á hindrunum þínum á miklu rólegri og yfirvegaðri máta en þú hefur gert áður. Mjög algengt verður að þið farið að læra jóga eða farið í eitthvað nýtt sem setur ykkur í þennan ótrúlega flotta hlutlausa gír, því farartækið ykkar er alveg með sýn á hvert það vill fara, þú ert búinn að stimpla það inn í lífsorkuna og ert að fara að ýta á enter! Friður myndast í fjölskyldum og samningar verða gerðir til þess að einfalda lífið þitt – ég veit ekki nákvæmlega hvers konar samningar, en allavega stendur þú uppi sem sigurvegari því að þú ert að draga inn í hjarta þitt svo miklu meira sjálfstraust en þú hefur haft. Að vera heiðarleg skiptir þig alveg svakalega miklu máli, svo steinhættu að skipta svona oft um skoðun, nýttu þér þessa þrjósku til að efla andann og hreinsa út veikindi. Þegar þú stendur upp getur ekkert stöðvað þig. Það er svo mikilvægt að það sé rómantík í kringum þig, þú þarft á hrifningu að halda, en ef þú ert ekki að fá þessa hrifningu eða rómantík sem þér finnst svo mikilvæg, skaltu bara skapa hana sjálf. Þetta er allt undir þér komið, engum að þakka né kenna nema sjálfri þér. Og þar sem þú hefur verið svo heppin að fæðast meyja þarftu ekki að væla yfir neinu, því velferðin heldur í höndina á þér. Mottó – Farðu með flæðinuFrægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar, baráttukona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Sjá meira