Aprílspá Siggu Kling - Tvíburinn: Núna er rétti tíminn til að spýta í lófana 7. apríl 2017 09:00
Elsku Tvíburinn minn, það er náttúrulega alveg á hreinu að draumar hafa ekki síðasta söludag og þínir draumar eru í óðaönn að rætast. Gefðu þér aðeins tíma til að skoða hvað þú mátt vera þakklátur fyrir, þá sérðu að þú ert kominn miklu lengra en þú bjóst við. Þú hefur þann hæfileika að geta yfirleitt verið í núinu af því að þér finnst gaman að lífinu. En þegar einhver setur út á þig og hristir líf þitt til þá geturðu kallað yfir þig vonleysi. Það sést svo langar leiðir þegar þú finnur fyrir vonleysi, þú ert nefnilega manneskjan sem átt að hressa aðra við og þar af leiðandi verður heimurinn hissa þegar hann sér að þér líður illa. En núna er rétti tíminn til að spýta í lófana, hversu sóðalegt sem það nú er, því að þú ert að nálgast orku sem gefur þér kraftaverk, þú ert að nálgast orku sem magnar upp það sem þú hugsar svo settu góðar og framsæknar hugsanir í hjarta þitt, þá líður þér betur og ef þér líður betur finnurðu hamingjuna. Er það ekki það eina sem þú vilt? Það kemur fyrir að þér finnst þú vera svolítið aleinn í heiminum en það er svo sannarlega vitleysa, það eru margir sem treysta á þig og þú þarft að sjá það betur að það er fjölskyldan sem skiptir öllu máli í ferli lífsins, þar býr hamingjan. Ég veit að allmörg ykkar vita þetta og eru með þetta alveg á hreinu, fólk er gjörsamlega heillað af þér, bæði hvernig þú talar og hversu mikla ástríðu þú gefur frá þér. Þú ert eins og gangandi ástarkaleikur, þú þarft að læra að njóta þess hvaða krafta þú gefur frá þér og muna að hamingjan býr að sjálfsögðu í þér, og í fólki sem er nálægt þér. Það eru margir sem munu elta þig ef þú flytur þig til og það eru miklir möguleikar á búferlaflutningum á næstu mánuðum. Þú átt eftir að redda því sem þú þarft og mottóið þitt er sjálfsögðu ÞETTA REDDAST!Frægir Tvíburar: Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður, Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland, Donald Trump, Þórarinn Þórarinsson blaðamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Sjá meira