Opið bréf til yfirvalda í velferðarmálum Eyjólfur Magnússon Scheving og Garðar Baldvinsson skrifar 8. september 2017 12:00 Höndin hefur frá fyrstu tíð haft það að meginmarkmiði sínu að hafa sem minnsta yfirbyggingu – og meginhugsunin er að fara til fólksins og gera heimilið að miðstöð hjálparstarfsins. Höndin mannræktarsamtök hefur núna starfað á þessum grundvelli í tólf ár. Hugmyndafræði Handarinnar byggir á aðstoð við lítilmagnann í samfélaginu. Höndin fer til skjólstæðinga sinna og aðstoðar þá, eins konar heimaþjónusta. Margir skjólstæðingar Handarinnar búa einnig úti á landi, á Árborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og jafnvel í Stykkishólmi. Stór hluti af starfi Handarinnar er líka viðtalsþjónusta, bæði er skjólstæðingum boðið heim til formanns félagsins og líka eru viðtöl heima hjá þeim. Enn fremur er snar þáttur í starfinu að ræða við fólk í síma, meðal annars til að fylgja eftir aðstoðinni sem veitt er úti á vettvangi en líka til að fylgjast með hvernig skjólstæðingunum gengur að fóta sig í lífinu á nýjan leik. Þessi hugmyndafræði um að fara með þjónustuna út til fólksins þar sem þörfin er mest er ekki uppfinning Handarinnar en því miður hefur samfélagið færst æ meira frá slíkri þjónustu. Þess vegna er það okkur ánægjuefni að Landspítalinn er nú að hefjast handa um að færa hluta af sinni þjónustu út til fólksins, að fara heim til fólks og veita því þjónustu og aðstoð að einhverju leyti þar, enda betra og ódýrara fyrir samfélagið og alla.Styrkurinn lækkaður Eins og gefur að skilja fylgja þessu starfi veruleg útgjöld. Höndin hefur fengið framlög frá opinberum aðilum, meðal annars Reykjavíkurborg sem og fyrirtækjum og einstaklingum og erum við þakklát öllum þessum góðu aðilum. Stærstu styrkirnir hafa ennfremur komið frá Alþingi þangað til minni styrkir voru færðir til ráðherra árið 2009. Hafa framlög til Handarinnar farið hríðlækkandi síðustu ár. Á þessu ári var styrkur velferðarráðherra til dæmis lækkaður úr tveimur milljónum í eina milljón. Þrátt fyrir umleitun félagsins hafa ekki fengist nein svör frá ráðherra eða ráðuneyti til skýringar á þessari lækkun. Fari svo að framlagið hækki ekki á næsta ári er stór hætta á að starfsemi Handarinnar leggist af og tugir skjólstæðinga verði þá aftur úti á guði og gaddinum. Höndin hefur ekki fólk á launum við að sinna þjónustunni sem hún veitir. Sum félög fá einnig og jafnframt stór framlög frá hinu opinbera annars staðar frá til að standa straum af launum starfsmanna og húsaleigu, jafnvel til margra verkefna í senn, en ekki er hægt að fá nánari upplýsingar um slíkt þrátt fyrir eftirgrennslan, þótt stjórnsýslan eigi að vera bæði opin og gagnsæ núorðið. Það er auðvitað kraftaverki líkast að Höndin skuli hafa haldið úti starfsemi sinni í tólf ár með þessum litlu fjármunum sem hún hefur haft yfir að ráða. Ráðdeild forráðamanna félagsins hefur verið með eindæmum. Þess vegna er enn furðulegra að stjórnvöld skuli nú á þessu ári skerða framlög til starfs Handarinnar um helming og stefna þessari mikilvægu aðstoð við lítilmagna samfélagsins þannig í voða. Eyjólfur Magnússon Scheving er stofnandi Handarinnar.Garðar Baldvinsson er ritari Handarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína Skoðun Ærleg og heiðarleg manneskja Hlynur Hallsson Skoðun Skoðun Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Vofa húsagans býsnast enn Haukur Már Helgason skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um Ísland, Katrínu og Gaza Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason skrifar Skoðun Katrín og kvenhatrið Ólafur Sveinsson skrifar Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson skrifar Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína skrifar Skoðun Inngönguspáin Eygló Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ærleg og heiðarleg manneskja Hlynur Hallsson skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar