Sjúkdómur Stefáns Karls langt genginn Atli Ísleifsson skrifar 21. júní 2017 20:27 Stefán Karl Stefánsson glímir við gallgangakrabbamein. Vísir/Andri Marinó
Sjúkdómur Stefáns Karls Stefánssonar leikara er langt genginn, á fjórða stigi og eru lífslíkur hans verulega skertar. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur, eiginkonu Stefáns Karls, sem hún birti í kvöld. Steinunn Ólína segir frá því að Stefán Karl glími við gallgangakrabbamein (Cholangiocarcinoma), sjaldgæfan og lítt rannsakaðan sjúkdóm. Hún segir að fjórtán daga spítalavist Stefáns Karls sé nú lokið en 7. júní voru fjarlægð þrjú meinvörp úr lifur og hafi hann í kjölfarið fengið sýkingu sem lengdi spítalavistina um viku. „Það var harmafregn að í Stefáni skyldu finnast meinvörp svo fljótt en hann fór í viðamikla aðgerð (Whipple) í byrjun október 2016 þar sem frumæxlið sem óx úr gallgangi yfir í brisið var fjarlægt. Sjúkdómurinn er nú langt genginn, á 4. stigi og því eru lífslíkur hans því miður verulega skertar. Lækning er ekki í sjónmáli þegar sjúkdómurinn er svo langt genginn, tilraunir eru gerðar með lyf og lífslengjandi hefðbundnar og óhefðbundnar meðferðir víða um heim en svörin eru ekki að berast sem skyldi enn sem komið er. Hefðbundnar krabbameinslyfjameðferðir skila heldur ekki árangri sem heitið getur þegar hér er komið sögu. Meinvörp þessa sjúkdóms er stundum hægt að fjarlægja með skurðaðgerðum eins og í aðgerðinni sem Stefán fór í gegnum fyrir hálfum mánuði en óvíst er að hann þyldi fleiri slíkar þegar sjúkdómurinn lætur aftur á sér kræla eða að það verði hreinlega gerlegt vegna staðsetningar meinvarpa. Um þetta er lítið hægt að spá á þessari stundu. Við vonum það besta. Það var óbærilegt að segja börnunum okkar frá því að pabbi þeirra yrði ekki gamall maður og að tíminn sem við ættum saman væri af skornum skammti. Að taka þá von frá þeim að pabba muni nokkurn tíma batna. Traust barna sinna eignast maður ekki nema að maður segi þeim satt, líka þegar það virðist ógerlegt. Það hefur verið þeim léttir að vita að ekki er verið að leyna þau neinu. Ef einhver heldur að börn séu ekki þess megnug að eiga innihaldsríkar samræður um dauðann, lífið og tilveruna þá fer sá hinn sami á mis við margt. Vigfús prestur á Barnaspítalanum leiddi þennan erfiða fund með mér og börnunum fjórum og gerði það fallega og af gríðarlegri fagmennsku. Ég hefði ekki getað það án hans. Fjölskylda og vinir okkar eru allir slegnir yfir stöðu mála og hver og einn tekur á sinn hátt þessum þungbæru staðreyndum sem blasa við okkur. Það er furðulegt að þótt maður sé fastur í senu í miðri stórslysamynd – þá glennir sólin sig núna bara eins og ekkert hafi í skorist – hvernig má það vera? Lífið er makalaust. Ég vil þakka læknum Stefáns, hjúkrunarfræðingum og öllu starfsfólki 13-G fyrir alúðina á undanförnum dögum. Afburðafólk allt saman. Ég vil líka þakka óvænta vininum sem ég eignaðist á bekk fyrir utan spítalann fyrir trúnaðarsamtalið, gaurnum á bónbílnum sem fór í rallý með Júliu og Steina á göngum Landspítalans og næturverðinum sem brosti til mín þegar ég fór heim á næturnar. Þrátt fyrir að líkurnar og tölfræðin séu okkur ekki í hag og kerti Stefáns brenni hratt þá ætlum við ekki að dvelja við það og verða örkumla af hræðslu. Við vitum að tíminn er dýrmætur sem aldrei fyrr og höfum einsett okkur að njóta hans eins vel og okkur gefst kostur á. Dauðinn er nauðaómerkilegur – lífið er hinsvegar ekkert minna en stórkostlegt! Ég vil þakka allar hlýjar kveðjur til okkar – þær eru okkur ómetanlegar,“ segir í færslunni sem lesa má í heild sinni að neðan.
Tengdar fréttir Ákváðu að tala opinskátt um veikindin eftir sögusagnir um andlát Stefán Karl Stefánsson segist hafa fundið fyrir ómetanlegum stuðningi í gegnum veikindin. 25. apríl 2017 11:01 Ný meinvörp fundust í lifur Stefáns Læknar telja að mögulegt sé að fjarlægja þau. 20. maí 2017 08:53 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira
Ákváðu að tala opinskátt um veikindin eftir sögusagnir um andlát Stefán Karl Stefánsson segist hafa fundið fyrir ómetanlegum stuðningi í gegnum veikindin. 25. apríl 2017 11:01