Fáir hafa nýtt réttinn til að skipta um heilsugæslustöð Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 18. mars 2017 07:00 Sautján heilsugæslustöðvar eru nú á höfuðborgarsvæðinu og tólf sjálfstætt starfandi læknar. vísir/ernir
Innan við 1% þeirra sem eru skráðir með heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu hafa nýtt sér þann möguleika sem gafst um áramótin að skipta um heilsugæslustöð. Þessi tala er þó líklega ekki marktæk, að sögn Ingveldar Ingvarsdóttur, deildarstjóra hjá Sjúkratryggingum Íslands. „Í byrjun janúar var verið að leiðrétta skráningar. Verið var að ljúka við skráningu þeirra sem ekki höfðu heilsugæslustöð og einnig var nokkuð um að einstaklingar væru skráðir á tveimur stöðum, bæði hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni og á heilsugæslustöð. Það er ekki heimilt,“ greinir Ingveldur frá."Með þessu myndast hvati hjá heilsugæslustöðvum að bjóða upp á betri þjónustu við sína skjólstæðinga.“ Ingveldur Ingvarsdóttir, deildarstjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands.Samkvæmt nýja fjármögnunarkerfinu sem tók gildi um áramótin eiga allir sjúkratryggðir að vera skráðir á heilsugæslustöð eða hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni. Í lok nóvember í fyrra voru rúmlega 21 þúsund manns á höfuðborgarsvæðinu ekki með heilsugæslustöð en í byrjun þessa árs voru allir sjúkratryggðir íbúar á höfuðborgarsvæðinu, 205 þúsund manns, skráðir. Ef einstaklingur ákveður að færa sig á milli stöðva flyst fjármagn sem greitt er með viðkomandi yfir á nýju stöðina. „Með þessu myndast hvati hjá heilsugæslustöðvum til að bjóða upp á betri þjónustu við skjólstæðinga sína,“ tekur Ingveldur fram. Innt eftir því hvort hægt sé að merkja hvort einhverjar heilsugæslustöðvar séu vinsælli en aðrar segir Ingveldur að ekki sé hægt að sjá neitt slíkt út úr þeim gögnum sem Sjúkratryggingar hafi. „Það er auðvitað meiri breyting hjá stærri stöðvunum sem stýrist líklega mest af því að þær eru staðsettar í fjölmennum hverfum. Hlutfallsleg breyting á skráningu virðist vera svipuð milli stöðva.“ Nú eru 17 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og 12 sjálfstætt starfandi heimilislæknar. Tvær nýjar stöðvar verða opnaðar í sumar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira