Pistorius sleppur með sex ár í staðinn fyrir fimmtán Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. júlí 2016 07:00 Oscar Pistorius í réttarsal í gær. Nordicphotos/AFP
Oscar Pistorius var í gær dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, árið 2013. Lögmenn hans sögðu hann ekki ætla að áfrýja dómnum heldur afplána refsingu sína. Dómarinn, Thokozile Masipa, sagði kringumstæður valda því að hann fái ekki einu sinni þann lágmarksdóm, sem lög kveða á um, sem er fimmtán ára fangelsi. Pistorius hafi sem sagt ekki vísvitandi ætlað sér að valda kærustu sinni bana, heldur talið að þar væri innbrotsþjófur á ferð. Hann hafi líka sýnt af sér greinilega iðrun. Á móti vegi að hann hafi greinilega ætlað sér að drepa manneskjuna, sem hann taldi vera innbrotsþjóf. Í september árið 2014 dæmdi sami dómari Pistorius í fimm ára fangelsi fyrir að hafa orðið Steenkamp að bana. Hann fékk fljótlega heimild til að afplána dóminn í stofufangelsi heima hjá frænda sínum. Hæstiréttur ógilti þennan dóm í desember síðastliðnum og sagði Pistorius sekan um morð, þar sem hann hefði átt að hafa gert sér fulla grein fyrir því að hann væri að verða manni að bana. Masipa fékk málið aftur til meðferðar og sagðist sannfærð um að Pistorius væri ekki ofbeldismaður. Hún sagði jafnframt að sér bæri skylda til að leiðrétta þann þráláta misskilning að Pistorius hafi vísvitandi ætlað að drepa kærustu sína: „Almannarómur getur verið hávær og þrálátur, en hann getur ekki átt neinn hlut að ákvörðun þessa dómstóls.”Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira