Sonur Geirmundar baðst ekki undan því að gefa skýrslu fyrir dómi Birgir Olgeirsson skrifar 3. október 2016 14:34 Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri í Keflavík, e ákærður fyrir að misnota aðstöðu sína sem sparisjóðsstjóri með lánveitingum til einkahlutafélaga.
Sverrir Geirmundsson baðst ekki undan því að gefa skýrslu í máli gegn föður sínum Geirmundi Kristinssyni, fyrrverandi sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Keflavíkur, í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vegna fjölskyldutengsla hefði Sverrir getað neitað því að gefa skýrslu fyrir dómi í máli þar sem faðir hans er ákærður en hann kaus að gefa skýrslu. Geirmundur er ákærður fyrir umboðssvik en ákæran gegn honum er í tveimur liðum og tengist lánafyrirgreiðslum upp á samtals rúmar 780 milljónir króna en af þeim töpuðust um 730 milljónir króna. Hann er sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé sjóðsins í verulega hættu þegar hann veitti einkahlutafélaginu Duggi 100 milljóna króna yfirdráttarlán. Lánið var fært yfir í Sparisjóðabankanna, sem þá hét Icebank, sem notað var sem handveð fyrir öllum skuldum og skuldbindingum félagsins Suðurnesjamanna ehf. gagnvart bankanum. Geirmundur er einnig ákærður fyrir að hafa valdið félaginu verulegri fjártjónshættu þegar hann sem stjórnarformaður dótturfélags sjóðsins framseldi stofnfjárbréf í Sparisjóði Keflavíkur, að verðmæti rúmlega 683 milljóna króna, í lok árs 2007 til félagsins Fossvogshyls ehf. Ekkert endurgjald kom á móti bréfunum en við framsalið eignaðist dótturfélag sjóðsins kröfu á Fossvogshyl. Á endanum fengust um 50 milljónir upp í kröfurnar. Enginn lánasamningur mun hafa verið gerður og ekki gengið frá neinni tryggingu fyrir því að krafan yrði greidd, að því er segir í ákærunni. Félagið var síðar framselt til sonar Geirmundar, Sverris, í mars árið 2008. Lánveiting var að fullu afskrifuð í bókhaldi sparisjóðsins í mars árið 2010 eftir að krafa Víkna var færð yfir í sjóðinn og flokkuð þar sem útlán. Sverrir var í stjórn Fossvogshyls en hann sagðist ekki hafa átt neina aðkomu að rekstri félagsins en að hafa setið í stjórn. Honum var ekki kunnugt um hver stjórnaði félaginu, þrátt fyrir að hafa verið í stjórn. Hann var spurður út í undirskriftir sínar á samþykktir innan stjórnar Fossvogshyls en hann gat ekki staðfest að um væri að ræða sínar undirskriftir og gekk svo langt í einu tilviki að halda því fram að undirskriftin líktist ekki hans eigin og að ef hennar hefði verið aflað þá hefði það verið gert á fölskum forsendum. Hann sagðist aldrei hafa átt félagið Fossvogshyl og talaði um meint framsalsgögn og að plögg um framsöl í þeim efnum væru fölsuð. Hann sagðist aldrei hafa verið eigandi að Fossvogshyl heldur aðeins verið beðinn um að koma tímabundið inn í stjórn félagsins. Það hefði verið staðfest í samtali við endurskoðanda. Fyrr í dag baðst Geirmundur undan því að svara spurningum saksóknara við aðalmferðina sem vörðuðu ákæruna. Hann sagðist hafa svarað slíkum spurningum í skýrslutöku hjá lögreglu og að þau svör stæðu. Hann neitar sök í málinu en á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist verði hann fundinn sekur.
Tengdar fréttir Sparissjóðsstjórinn ákærður fyrir 730 milljóna króna lánveitingar Gefið að sök að hafa lánað 100 milljónir til einkahlutafélags sem glötuðust og fært stofnfjárbréf að verðmæti 680 milljóna, sem töpuðust að stærstum hluta. 18. mars 2016 15:27 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Fleiri fréttir Braust inn með hníf í einni og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Sjá meira
Sparissjóðsstjórinn ákærður fyrir 730 milljóna króna lánveitingar Gefið að sök að hafa lánað 100 milljónir til einkahlutafélags sem glötuðust og fært stofnfjárbréf að verðmæti 680 milljóna, sem töpuðust að stærstum hluta. 18. mars 2016 15:27