Volvo trukkur sem er 4,6 sek. í 100 Finnur Thorlacius skrifar 22. nóvember 2016 15:07
Volvo smíðaði á dögunum trukkinn “Iron Knight” í aðeins einum tilgangi, að slá við hraðaheimsmeti á meðal trukka. Til þess dugði ekkert nema 2.400 vél með um 6.000 Nm tog. Þessi trukkur er með miðjusett dísilvél og sjálfskiptingu með tveimur kúplingum. Hann er ári fljótur úr sporunum og kemst á 100 km hraða á 4,6 sekúndum. Í stuttu máli tókst þeim Volvo mönnum að setja nýtt heimsmet á Skelleftea brautinni í Svíþjóð og til að fá það viðurkennt varð trukkurinn að fara 1.000 metra vegalengd í báðar áttir og tókst það á 21,29 sekúndum og 500 metra kláraði hann á 13.71 sekúndu. Endahraðinn var 276 km/klst. “Iron Knight trukkurinn er 4,5 tonn og heilu tonnu léttari og 600 hestöflum öflugri en sá trukkur sem átti hraðametið áður, en hann var einnig af Volvo-gerð og var kallaður “Mean Green”. Sjá má trukkinn öfluga setja metið í myndskeiðinu hér að ofan.
Bílar video Mest lesið Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Innlent Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Erlent Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Innlent Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Innlent Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent