Innlent

Kaupa hús fyrir stjórnsýslu Kópavogs á 585 milljónir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópvogi.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópvogi. vísir/anton
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti einróma að kaupa Digranesveg eitt fyrir stjórnsýslu Kópavogs á fundi sínum í dag en kaupverðið eru 585 milljónir króna. Þá var einnig samþykkt að innrétta Hressingarhælið við Kópavogstún fyrir fundi bæjarstjórnar og móttökur.

Haft er eftir Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs, í tilkynningu að hann sé afar ánægður með þessa niðurstöðu varðandi húsnæði stjórnsýslunnar.

„Húsið hentar stjórnsýslunni vel, staðsetningin er góð og húsið eitt af kennileitum bæjarins. Þá kostar það minna en áætlaðar viðgerðir á bæjarskrifstofunum og við losnum við áhættuna sem fylgir því að gera upp gömul hús. Slíkar viðgerðir fara nær undantekningarlaust fram úr áætlun,“ segir Ármann.

Stjórnsýsla bæjarins mun flytja smám saman í húsið en hluti þess losnar núna í maí og mun þá hluti fjármála-og stjórnsýslusviðs flytja í húsið. Áætlað er að selja núverandi húsnæði stjórnsýslunnar við Fannborg 2 og 4 en nýta áfram Fannborg 6 fyrir hluta hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×